| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Á dögunum könnuðum við ykkar skoðun á því þegar Rafael Benítez tók upp á því að gagnrýna Alex Ferguson. Eins og allir muna þá las Rafael Benítez framkvæmdastjóra Manchester United pistilinn og dró hvergi af sér á blaðamannafundi snemma á árinu.

Helmingur ykkar taldi að Rafael Benítez hefði gjört rétt í því að láta Alex heyra það. Rúmur fjórðungur skildi samt ekki tilganginum í því hjá Rafael að gagnrýna Alex. Fáir voru á því að lesturinn hefði betur ekki átt sér stað og enn færri höfðu ekki skoðun á málinu.

Hver svo sem tilgangurinn var hjá Rafael Benítez að láta Alex heyra það þá verður því ekki á móti mælt að það sem hann sagði var allt rétt og satt enda vitnað í skotheldar heimildir. Hver og einn getur svo velt því fyrir sér hvort Rafael valdi rétta tímann í annars þarfa lesningu.

 

 

Hér er niðurstaðan úr könnuninni!

Já! - 50,64 %

Ég skil ekki tilganginn í því - 25,95 %

Nei! - 14,71 %

Ég hef ekki skoðun á því - 8,70 %

Heildarfjöldi atkvæða: 1414.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan