Unglingalið Liverpool hafði betur gegn Chelsea á fimmtudagskvöldið og er komið í átta liða úrslit Unglingabikarkeppninnar. Liverpool vann 1:0 á Anfield Road og var þetta annað tap Chelsea þar í sömu vikunni en aðalliðið tapaði þar á sunnudaginn!
Liverpool byrjaði leikinn af krafti og náði forystu strax á 17. mínútu. Adam Pepper sendi þá stórgóða sendingu fyrir markið á David Amoo, sem er hér á mynd, og hann skallaði í mark. David hefði svo getað skorað aftur skömmu seinna en honum tókst ekki að skora einn gegn markverði Chelsea. Hinu megin varði Ástralinn Dean Bouzanis vel fast skot frá Daniel Phillislirk.
Eftir leikhlé skaut Nathan Eccleston framhjá eftir að hafa fengið góða stungusendingu frá Thomas Ince. Chelsea skoraði svo mark sem dæmt var af. Finninn Lauri Dalla Valle skoraði líka en mark hans var dæmt af vegna rangstöðu. Hann er búinn að skora mikið fyrir unglingalið Liverpool á þessari leitkíð. Stundarfjórðungi fyrir leikslok hefði David átt að gulltryggja sigurinn en hann skaut framhjá úr góðri stöðu. Gestirnir reyndu að jafna undir lokin en vörn Liverpool var traust og gaf ekki færi á sér. Góður sigur Liverpool og leikmenn liðsins, sem margir voru að spila í fyrsta sinn á Anfield, geta verið ánægðir með frumraun sína þar.
Liverpool: Bouzanis, Wisdom, Buchtmann, Ayala, Kennedy, Irwin, Amoo, Pepper (Kacaniklic 73. mín.), Dalle Valle, Ince og Eccelston. Ónotaðir varamenn: Chamberlin, Metcalf, Roberts og Ellison.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Amoo.
Áhorfendur á Anfield Road: 2.193.
Helsta heimild: Liverpoolfv.tv.
Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
Liverpool mætir Bolton Wanderes í átta liða úrslitum. Leikurinn fer fram á Anfield Road þann 27. febrúar.

David Amoo og Nathan Eccleston fagna í leikslok!