| Heimir Eyvindarson
Rafael Benítez segir að hið góða form sem er á Yossi Benayoun þessa dagana sé lýsandi dæmi um það að hver einasti leikmaður liðsins hafi mikilvægu hlutverki að gegna, í baráttunni um enska meistaratitilinn og aðra titla sem enn eru í boði á þessu tímabili.
Ísraelski landsliðsfyrirliðinn skoraði glæsilegt mark gegn Wigan í síðustu viku og átti sterka innkomu gegn Chelsea á sunnudaginn var, þegar hann bjó til seinna mark Fernando Torres. Markið sem gerði endanlega út um leikinn.
Benítez fer fögrum orðum um Benayoun í viðtali við Liverpoolfc.tv í dag: ,,Yossi er afar hæfileikaríkur leikmaður, með frábæran leikskilning."
,,Hann er einn af þeim leikmönnum sem geta upp á sitt einsdæmi breytt gangi leikja á augabragði. Vonandi á hann eftir að snúa sem flestum leikjum okkur í hag það sem eftir lifir tímabilsins."
,,Við erum sífellt að hamra á því að hver einasti leikmaður sé mikilvægur. Ekki bara þeir sem byrja inn á hverju sinni, heldur líka þeir sem eru á bekknum og ekki síður þeir sem komast ekki alltaf í hópinn. Yossi er mjög gott dæmi um þetta, hann er sterkur hlekkur í öflugri liðsheild, þar sem hver einasti maður þarf að vera tilbúinn þegar kallið kemur."
TIL BAKA
Yossi er öðrum til eftirbreytni
Rafael Benítez segir að hið góða form sem er á Yossi Benayoun þessa dagana sé lýsandi dæmi um það að hver einasti leikmaður liðsins hafi mikilvægu hlutverki að gegna, í baráttunni um enska meistaratitilinn og aðra titla sem enn eru í boði á þessu tímabili.Ísraelski landsliðsfyrirliðinn skoraði glæsilegt mark gegn Wigan í síðustu viku og átti sterka innkomu gegn Chelsea á sunnudaginn var, þegar hann bjó til seinna mark Fernando Torres. Markið sem gerði endanlega út um leikinn.
Benítez fer fögrum orðum um Benayoun í viðtali við Liverpoolfc.tv í dag: ,,Yossi er afar hæfileikaríkur leikmaður, með frábæran leikskilning."
,,Hann er einn af þeim leikmönnum sem geta upp á sitt einsdæmi breytt gangi leikja á augabragði. Vonandi á hann eftir að snúa sem flestum leikjum okkur í hag það sem eftir lifir tímabilsins."
,,Við erum sífellt að hamra á því að hver einasti leikmaður sé mikilvægur. Ekki bara þeir sem byrja inn á hverju sinni, heldur líka þeir sem eru á bekknum og ekki síður þeir sem komast ekki alltaf í hópinn. Yossi er mjög gott dæmi um þetta, hann er sterkur hlekkur í öflugri liðsheild, þar sem hver einasti maður þarf að vera tilbúinn þegar kallið kemur."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

