David Ngog tryggði langþráðan sigur varaliðsins
David Ngog tryggði langþráðan sigur varaliðsins með því að skora bæði mörkin gegn Middlesborough í kvöld. Sigurinn færði Liverpool þrjú mikilvæg stig í botnbaráttunni. Guðlaugur Victor Pálsson var í æfingagalla Liverpool á bekknum allan leikinn.
Liverpool hóf leikinn af krafti á heimavelli sínum og sótti linnulaust. Lengi vel sköpuðust fá færi en eftir því sem leið á síðari hálfleikinn fóru leikmenn Liverpool að vera hættulegri. Daniel Pacheco átti gott skot sem fór rétt framhjá. Nabil El Zhar átti svo skot yfir. Enn sótti Liverpool og Krisztian Nemeth komst í færi en Jason Steele varði vel. Hann varði svo aukaspyrnu frá Daniel Pacheco. Heimamenn hefðu átt að vera komnir yfir í hálfleik en það var nú ekki svo.
Sókn Liverpool var sem fyrr látlaus eftir leikhlé en það var ekki fyrr en á 60. mínútu sem Rauðliðar náðu loks að skora. David Ngog fékk þá sendingu inn á teiginn og hann skoraði af öryggi með skoti neðst í hornið. Fimm mínútum síðar skoraði David aftur. Franski strákurinn fékk þá háa sendingu fram völlinn sem fór yfir vörn Boro og hann skoraði annað mark sitt. Sigur Liverpool hefði átt að vera miklu stærri en raunin var. Honum var þó vel fagnað í leikslok.
Sigurinn var bæði langþráður og kærkominn enda hafði varalið Liverpool ekki unnið leik frá því í nóvember. Þetta var aðeins þriðji sigur meistaranna á leiktíðinni í ellefu leikjum. Liverpool hefur nú ellefu stig og fjarlægðist botninn aðeins.
Liverpool: Peter Gulacsi, Emmanuel Gomis Mendy, Stephen Darby, Mikel San Jose Dominguez, Jay Spearing, Damien Plessis, Nabil El Zhar, Daniel Pacheco (Vitor Flora 77. mín.), Krisztian Nemeth (Andras Simon 69. mín.), David Ngog og Vincent Weijl (Steven Irwin 46. mín.). Ónotaðir varamenn: Martin Hansen og Guðlaugur Victor Pálsson.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Ngog. Franski sóknarmaðurinn kórónaði góðan leik sinn með því að skora tvö góð mörk.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

