Unglingaliðið komst áfram eftir vítaspyrnukepppni
Unglingalið Liverpool komst áfram í Unglingabikarkeppninni eftir nauman sigur á Bristol Rovers. Liðin skildu jöfn 2:2 eftir framlengingu og það þurfti vítaspyrnukeppni til að ná fram úrslitum.
Fyrri hálfleikur var geysilega fjörugur og bæði lið fengu fullt af færum til að skora. Ef eitthvað var þá fengu heimamenn í Bristol betri færi. Ekkert var þó skorað í hálfleiknum og Dean Bouzanis hafði í mörg horn að líta í marki Liverpool. Gestirnir hófu síðari hálfleik betur og á 55. mínútu átti Svíinn Alex Kacaniklic skot sem markmaður Bristol hélt ekki. Finninn Lauri Dalla Valle var snöggur að átta sig og skallaði frákastið í markið. Bristol Rovers jafnaði aðeins tveimur mínútum seinna. Eliot Richards, sem átti stórleik, skoraði þá af stuttu færi. Fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma. Bæði lið hefðu þó vel getað það en framlenging varð ekki umflúin.
Liverpool fékk óskabyrjun í framlengingunni þegar David Amoo, sem átti mjög góðan leik, sendi stungusendingu á Lauri sem afgreiddi boltann í markið af öryggi innan teigs. Þetta var þriðja mark finnska stráksins í þessari keppni. En eins og áður þá jöfnuðu heimamenn rétt á eftir að Liverpool komst yfir. Brotið var á Eliot Richards inni í vítateig. Hann tók vítið sjálfur og skoraði. Eftir þetta dró úr hraða og krafti leikmanna enda þreyta farin að segja til sín. Staðan var 2:2 eftir framlenginguna.
Steven Irwin, Lauri Dalla Valle, Nathan Eccleston og Joe Kennedy skoruðu fyrir Liverpool. Einn leikmanna Bristol skaut yfir áður en Dean tryggði sigur Liverpool með því að verja frá Eliot Richards. Ungliðar Liverpool fögnuðu en heimamenn sátu eftir með sárt ennið.
Liverpool: Dean Bouzanis, Jack Metcalf, Christopher Buchtmann, Andre Wisdom, Joe Kennedy, Steve Irwin, David Amoo, Adam Pepper (Eccleston 68. mín.), Lauri Dalla Valle, Tom Ince og Alex Kacaniklic (Ellison 77. mín.). Ónotaðir varamenn: Alex Cooper, Deale Chamberlain og Michael Roberts.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Amoo skapaði látlausa hættu og átti þátt í náðum mörkunum sem Liverpool skoraði.
David Aamo er á meðfylgjandi mynd í búningi Millwall en hann var áður þar á mála.
Áhorfendur á Memorial leikvanginum: 2.459.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
Liverpool mætir Chelsea á Anfield Road í næstu umferð. Leikurinn fer fram þann 5. febrúar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

