| Sf. Gutt

Rafael Benítez hafnar nýju samningstilboði!

Eins og kunnugt er þá hafa staðið yfir samningaviðræður milli forráðamanna Liverpool og Rafael Benítez um nýjan samning.

Staðarblaðið Echo greinir frá því í dag að Rafael hafi nú hafnað því samningstilboði sem honum hefur verið gert! Nú er ekki gott að segja hvað úr verður með áframhaldandi veru Rafael Benítez hjá Liverpoool. Núverandi samningur hans við félagið gildir til ársins 2010 og væntanlega verður hann hjá Liverpool þangað til. Svo gæti auðvitað núverandi samningur verið framlengdur þó Rafa hafi hafnað þessu tilboði sem nú liggur fyrir.

Fyrr í vikunni var greint frá því að samningaviðræður væru komnar á lokastig og Rafael sagði sjálfur að búið væri að ná samkomulagi um lengd samningsins og eins væri launaliðurinn frágenginn. En samningaviðræður munu hafa strandað á því að eigendur Liverpool Football Club vilja að Rick Parry, forstjóri Liverpool, hafi ætíð lokaorðið í sambandi við leikmannakaup og ýmis önnur mál sem Rafael vill sjálfur hafa ákvörðunarvald um. Rafa sagði meðal annars þetta í viðtali við Echo.

,,Eigendunum finnst að ég forstjórinn eigi að hafa lokaorðið í málum. Mér finnst á hinn bóginn að verk mín séu best dæmd af gengi liðsins og stuðningsmönnunum. Stuðningsmennirnir eru bestu dómarar um verk mín sem ég get fengið. Ég hef þá bjargföstu trú að þetta félag hafi allt til að bera til að geta tekið framförum og ég vil gjarnan vera hér til að stuðla að því. Ég mun halda áfram að sinna mínu starfi sem framkvæmdastjóri og einbeita mér að því sem stuðningsmennirnir vilja og það er að vinna titla. Frá þeim degi sem ég hóf störf hérna hjá félaginu þá hef ég lagt allt mitt í starfið og ég mun halda áfram að gera það. "

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan