| SSteinn

Minning

Vefurinn verður lokaður á milli 13:30 - 15:00 á morgun, föstudaginn 16. janúar vegna jarðarfarar Guðjóns Ægis Sigurjónssonar. Hann lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi skammt austan við Selfoss 5.janúar sl. Guðjón var gallharður Poolari og viljum við votta virðingu okkar á þennan hátt. Síða sem minnist hans verður það eina sem sést á liverpool.is á meðan lokun stendur.

Guðjón fæddist 4.janúar 1971 á Selfossi þar sem hann hefur alla tíð verið virkur í samfélaginu, hvort sem talað er um pólitík, félagsstörf eða íþróttir. Guðjón var hæstaréttarlögmaður og rak eigin lögfræðistofu ásamt æskuvini sínum, hann sat í stjórn Nýja Glitnis og var t.a.m. undanfarin ár í stjórn knattspyrnudeildar Selfoss, sem sjaldan hefur náð eins góðum árangri. Guðjón var öðlingspiltur, afar vel liðinn af öllum sem hann þekktu og dauði hans því mikið áfall fyrir samfélagið á Selfossi, sem nú syrgir mjög einn af sínum bestu sonum.  Guðjón lætur eftir sig eiginkonu og 2 börn.

Guðjón byrjaði að halda með Liverpool um leið og hann hafði vit á því og var dyggur stuðningsmaður alla tíð og hefur í mörg ár verið meðlimur í Liverpoolklúbbnum á Íslandi.  Hann sá átrúnaðargoðin nokkrum sinnum spila og átti t.a.m. frábæra ferð á síðasta ári þar sem Liverpool tók Roy Keane og hans menn í Sunderland í létta kennslustund og unnu 3-0.  Síðan þá hefur Liverpool vart tapað leik eins og Guðjón og ferðafélagar hans orðuðu það sjálfir.

Hápunkturinn í þeirri ferð var svo að hitta sjálfan Bruce Grobbelaar og spjalla létt við hann um úrslitaleikinn í Róm 1984 o.fl. Guðjón var markvörður sjálfur og Grobbelaar því í sérstöku uppáhaldi.

Meira er hægt að lesa um Guðjón hérna.

Hvíl í friði Guðjón, megi minning þín lifa.
YNWA
F.h. Liverpoolklúbbsins á Íslandi
Sigursteinn Brynjólfsson

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan