Sammy Lee segist í dag vonast til þess að Rafael Benítez taki fullan þátt í lokaundirbúningi liðsins fyrir Derby-tvennuna í næstu viku. Eins og kunnugt er hafa nýrnasteinar valdið stjóranum vandræðum og mun hann í dag gangast undir þriðju aðgerðina til að losna við það hvimleiða vandamál. Sammy Lee stjórnar liðinu á meðan.
,,Þetta er mjög erfiður tími fyrir Rafa, eins og allir sem þekkja hann vita. Hann vill bara vera á æfingasvæðinu með hópnum sínum, það er hans líf og yndi - en hann ber sig samt furðu vel. Hann undirgengst þriðju aðgerðina í dag og við erum vongóðir um að hann verði ekki lengi frá að þessu sinni, vonandi bara 2-3 daga."
,,Þó við söknum hans þá má segja að það sé samt lán í óláni að Rafa er svo þaulskipulagður að það gengur allt sinn vanagang á æfingum, jafnvel þó hann sé ekki á svæðinu. Hér er hvert skref fyrirfram ákveðið, að hætti Benítez!"
Benitez gekkst undir fyrstu nýrnasteinaaðgerðina í desember og var kominn aftur til starfa fyrir leikinn gegn Bolton á 2. í jólum, en síðan þá hefur hann fylgst með leikjum liðsins ofan úr stúku og eftirlátið Sammy Lee stjórnina á hliðarlínunni.
Lee slær á létta strengi: ,,Þú sérð leikinn auðvitað frá öðru sjónarhorni upp í stúku, en það er nú einu sinni þannig að hann sér fullt af hlutum sem ég kem ekki auga á þegar við sitjum báðir á bekknum, þannig að þetta er svosem ekki stór breyting!"
Lee tekur einnig undir orð Albert Riera þess efnis að vonbrigði leikmanna með jafnteflið við Stoke væru til marks um það hve langt liðið hefði náð.
,,Það að við séum vonsviknir yfir því að ná einungis einu stigi á erfiðum útivelli í Úrvalsdeildinni sýnir metnaðinn í liðinu. Ég myndi kannski ekki taka svo djúpt í árinni að segja að við höfum verið eyðilagðir, en strákarnir voru óneitanlega afar vonsviknir."
,,Við fórum í leikinn til að ná í öll þrjú stigin, en það tókst ekki. Við verðum samt að reyna að horfa á björtu hliðarnar, þó þær hafi kannski ekki verið svo margar í leiknum. Leikurinn þróaðist ekki eins og við vonuðumst til. Við stjórnuðum honum til að byrja með en svo misstum við tökin og þegar upp er staðið þá má segja að við höfum verið heppnir að þeir skyldu ekki ná að skora hjá okkur, sérstaklega úr föstum leikatriðum."
Liverpool er nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar, eftir að Manchester United bar sigurorð af Chelsea í stórmeistaraslagnum á Old Trafford á sunnudag.
Spurður að því hvort hann væri sammála þeim sem teldu að með tapinu hefðu titilvonir Chelsea minnkað til muna segir Lee: ,,Margir íþróttafréttamenn vilja meina að Chelsea sé úr leik í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn, en ég er ekki sammála því. Margir þessara sömu manna hafa líka látið hafa það eftir sér að nú sé aðeins eitt lið sem geti unnið deildina - ég kaupi það ekki heldur. Það er einfaldlega ekki hægt að útiloka neitt um miðjan janúar."
,,En við reynum að spá sem minnst í keppinauta okkar, við einbeitum okkur frekar að því sem við þurfum að gera. Og við vitum allir hvað það er", segir hinn snaggaralegi Sammy Lee að endingu.