| Sf. Gutt

Alan Hansen tjáir sig um ummæli Rafael Benítez

Það hefur verið um fátt meira fjallað í fjölmiðlum Bretaveldis, frá því á föstudaginn, en orðræðu Rafael Benítez um Alex Ferguson. Sitt sýnist hverjum og hér segir Alan Hansen, fyrrum leikmaður Liverpool, sitt álit.

"Mér fannst Rafael Benítez tala um Sir Alex Ferguson, stjóra United, á yfirvegaðan hátt og sumt sem hann sagði var bráðfyndið. Sumir segja að hann hafi bara rausað eitthvað út í loftið í reiði sinni en það er alls ekki rétt. Á hinn bóginn má segja að það sé aldrei gott að kalla aukalegt álag yfir sig og það sem gerðist um helgina þýðir að Liverpool er nú undir álagi. Rafael hefði kannski betur bara sagt að Alex Ferguson sé ekki vanur að eyða orðum á lið sem enda í fjórða eða fimmta sæti og honum finnist þannig greinilega að við séum hans helstu keppinautar. Hann hefði svo bara látið sína menn svara fyrir sig úti á vellinum. Alex sagði það sem hann sagði til að fá viðbrögð og hann fékk þau sannarlega."

Alan vék líka að titilbarátunni.

"Baráttan um titilinn er nú greinilega á milli Manchester United og Liverpool og bæði lið geta unnið titilinn. Stærstu prófraunir liðanna eru þó ekki komnar ennþá. Liverpool lék illa gegn Stoke. Þrátt fyrir það er liðið búið að standa sig ótrúlega vel á leiktíðinni og liðið á mjög góða möguleika á að vinna titilinn."

Þetta er brot úr pistli Alan Hansen sem birtist á vefsíðu BBC.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan