| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Fyrir nokkrum vikum könnuðum við hvenær þið, lesendur Liverpool.is, teljið að þeir George Gillett og Tom Hicks muni selja Liverpool Football Club.

Það var kannski ekki svo gott að úthugsa valmöguleika í þessari spurningu en fjórir voru gefnir. Flestir töldu þá félaga líklega til að selja fyrir lok þessa nýbyrjaða árs. Reyndar töldu næstum jafn margir að þeir muni selja nú fyrir vorið eða áður en þessari leiktíð lýkur. Nætum fjórðungur taldi að George og Tom myndu selja fyrir nýliðin áramót og svo fór nú ekki. Svo var sá möguleiki gefinn að þeir muni aldrei selja Liverpool F.C. og þó nokkrir töldu að svo gæti farið. Það er svo reyndar spurning hvort sá möguleiki var raunhæfur! Við sjáum hvað setur!

Hér er niðurstaðan úr könnuninni!

Áður en næsta ár er úti 31,99 %

Fyrir lok þessarar leiktíðar 30,01 %

Fyrir komandi áramót 22,41 %

Aldrei 15,58 %

Heildarfjöldi atkvæða: 1566.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan