Forráðmenn Liverpool ákveðnir í að næla í Guðlaug Victor
Forráðamenn Liverpool voru greinilega ákveðnir í því að næla í Guðlaug Victor Pálsson. Kaup hans til Liverpool, sem gengið var frá núna fyrir helgina, áttu sér nokkurn aðdraganda.
Guðlaugur var á reynslu hjá Liverpool í haust og í kjölfarið á því gerði Liverpool AGF Arhus kauptilboð. Forráðamenn danska liðsins höfnuðu tilboðinu enda var ætlunin þar á bæ að láta Guðlaug fara að spila með aðalliðinu á þessu ári. Í herbúðum Liverpool var neitunin ekki tekin gild og annað tilboð sett fram. Því var tekið núna fyrir jólin og Guðlaugur varð þar með leikmaður Liverpool!
Neitun danska félagsins á fyrsta tilboðinu og annað tilboð Liverpool virðist sýna að Guðlaugur Victor hafi unnið sig í mikið álit hjá báðum félögum. Guðlaugur er líka talinn mikið efni þrátt fyrir að hafa ekki verið mikið í fréttum fyrir það í fjölmiðlum á Íslandi.
Margt áhugavert kom fram í viðtali við Guðlaug sem var sent út á Bylgjunni núna í morgun. Hermann Gunnarsson fékk Guðlaug í viðtal og það má hlusta á viðtalið hérna á vefsíðu Bylgjunnar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

