| Mummi

BillyLiddell.com - Nýr vefur

LFChistory.net sem er í eigu Arngríms Baldurssonar og Guðmundar Þórs Magnússonar setti í loftið í dag nýjan glæsilegan vef um William Beveridge Liddell sem er án efa eitt stærsta nafn í sögu Liverpool. 10. janúar 2009 hefði Billy haldið uppá 87. afmælisdaginn sinn. LFChistory.net hefur verið í stöðugu sambandi við Renu Liddell, einu systur Billys, og fengið afnot af fjölda einstakra mynda og úrklippna sem hún hefur safnað í gegnum árin. Við vonumst til að Billyliddell.com verði "King Billy" til sóma.


 
"Liddell var rosalegur leikmaður. Hann hafði allt til brunns að bera. Hann var snöggur, kraftmikill og skallar hans voru eins og byssuskot. Auk þess var hann grjótharður af sér. Þvílíkur leikmaður! Hann var svo sterkbyggður að skyrtukraginn hans var 19 tommur!"
- Bill Shankly
 
"Billy verður ávallt minnst í Liverpool í sama anda og Shankly og Paisley."
- Ian Callaghan

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan