| Heimir Eyvindarson

Leikurinn við Stoke það eina sem skiptir máli

Rafael Benítez segir að það eina sem leikmenn og þjálfaralið Liverpool séu með hugann við nú um helgina sé viðureignin við Stoke á laugardaginn.

Í viðtali við Liverpool Echo segir hann að keppinautar liðsins skuli ekki láta sig dreyma um það að stórmeistaraslagur Chelsea og Manchester United, liðanna í 2. og 3. sæti deildarinnar, muni trufla einbeitingu sinna manna þegar kemur að leiknum við Stoke, enda skipti það höfuðmáli að vinna þann leik. Hann segist ekki vilja þurfa að spá í úrslit í leikjum annarra liða því að Liverpool liðið sé í þeirri stöðu að framtíðin sé í þeirra eigin höndum, ekki annarra.

,,Núna snúast hlutirnir eingöngu um Liverpool og úrslit okkar leikja", segir Spánverjinn ákveðinn.

,,Ef við höldum áfram að vinna okkar leiki þá skiptir engu máli hvernig leikir hinna liðanna fara. Auðvitað myndi það létta okkur lífið ef keppinautar okkar klúðruðu einum og einum leik, en það breytir því ekki að það eina sem við þurfum að hafa áhyggjur af eru okkar eigin leikir. Annað skiptir ekki máli."

,,Um helgina mætum við Stoke og það er einfaldlega það eina sem við hugsum um þessa stundina."

Nú þegar keppnistímabilið er hálfnað í Englandi trónir Liverpool á toppi deildarinnar og Benítez er vitanlega afar stoltur af því, en er jafnframt þeirrar skoðunar að liðið hafi ekki enn sýnt að fullu hvað í því býr.

,,Það er augljóst á stöðunni í deildinni að við höfum staðið okkur vel það sem af er vetri, en ég er sannfærður um að við eigum eftir að bæta okkur enn frekar. Síðustu 3-4 tímabil höfum við alltaf verið betri á seinni hluta tímabilsins og ég vona að það verði engin breyting á því að þessu sinni."

,,Núna eru líka sterkir leikmenn eins og Fabio Aurelio, Martin Skrtel og Fernando Torres að komast aftiur af stað eftir erfið meiðsli og það er mjög dýrmætt fyrir okkur. Í hópnum okkar eru einnig leikmenn sem eru óðum að komast í betra form og eru að taka miklum framförum þannig að ég horfi mjög jákvæðum augum á framhaldið."

,,Getan og sjálfstraustið eru til staðar og leikmennirnir vita að við þurfum að leggja hart að okkur til að halda okkur í þeirri stöðu sem við höfum komið okkur í. Þeir vita líka að við verðum að mæta fullir einbeitingar í hvern einasta leik því þrátt fyrir að við séum í góðri stöðu akkurat þessa stundina þá höfum við alls ekki efni á að gera of mikið af mistökum. Það getur reynst okkur dýrkeypt þegar upp er staðið."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan