| Heimir Eyvindarson
Lucas Leiva vonast til þess að frábært útivallaform Liverpool muni verða til þess að auka forskot liðsins á toppi Úrvalsdeildarinnar um helgina.
Í samtali við Liverpoolfc.tv segir hann að næsta helgi gæti markað tímamót í baráttunni um Enska meistaratitilinn. Lærisveinar Rafael Benítez hafa unnið sjö af tíu útileikjum sínum í vetur og þar sem helstu keppinautar liðsins í deildinni, Manchester United og Chelsea, leiða saman hesta sína um helgina gæti Liverpool náð allt að sex stiga forskoti á toppnum, að því gefnu að liðinu takist að leggja Stoke að velli á Brittania leikvanginum í Stoke on Trent.
,,Við stefnum auðvitað að því að vinna leikinn, til að halda okkur á toppnum, því það er ljóst að hvert einasta stig er afar dýrmætt í baráttunni um titilinn. Við erum fullir sjálfstrausts þessa dagana og trúum því að við getum unnið hvaða lið sem verður á vegi okkar."
,,Liverpool hefur þurft að bíða lengi eftir því að vinna deildina, en nú trúum við því að biðin verði brátt á enda. Liðið er mjög gott og það stefna allir að sama markmiði: Að vinna deildina."
,,Við erum líka með í baráttunni í meistaradeildinni og FA-bikarnum og við vonumst auðvitað til þess að ná árangri þar líka, en hér hjá Liverpool vilja menn helst af öllu vinna Englandsmeistaratitilinn. Skiljanlega."
,,Árangur okkar yfir hátíðirnar var mjög þýðingarmikill. Það var erfið og þétt leikjadagskrá en við uppskárum vel og erum allir mjög ánægðir með það. En nú fer baráttan í deildinni af stað á ný og við verðum að halda áfram að spila vel. Það væri mjög sterkt fyrir okkur að vinna Stoke á laugardaginn, þá getum við slappað af og beðið rólegir eftir úrslitunum í viðureign Manchester United og Chelsea."
Það ætti þó að vera leikmönnum Liverpool algjörlega ljóst að Tony Pulis og lærisveinar hans hjá Stoke eru sýnd veiði en ekki gefin. Skemmst er að minnast þess að þeim tókst að krækja í eitt stig í viðureign liðanna á Anfield í haust. Þá sat Lucas á bekknum allan tímann.
,,Það var erfitt að horfa á leikinn í haust og mjög svekkjandi að þeim skyldi takast að hirða af okkur stig. Við vorum miklu betri, vorum til dæmis með boltann 70% af leiktímanum, en þeir voru rosalega þéttir fyrir aftast og okkur tókst ekki að brjóta vörn þeirra á bak aftur."
,,Þetta verður örugglega hörkuleikur, þeir eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni - eru í þriðja neðsta sætinu eins og er - þannig að þeir munu örugglega mæta okkur af fullri hörku. En við erum klárir í slaginn. Við vitum hvað við þurfum að gera og erum staðráðnir í að ná góðum úrslitum", segir Brasilíumaðurinn geðþekki að lokum.
TIL BAKA
Lucas: Næsta helgi getur skipt sköpum
Lucas Leiva vonast til þess að frábært útivallaform Liverpool muni verða til þess að auka forskot liðsins á toppi Úrvalsdeildarinnar um helgina. Í samtali við Liverpoolfc.tv segir hann að næsta helgi gæti markað tímamót í baráttunni um Enska meistaratitilinn. Lærisveinar Rafael Benítez hafa unnið sjö af tíu útileikjum sínum í vetur og þar sem helstu keppinautar liðsins í deildinni, Manchester United og Chelsea, leiða saman hesta sína um helgina gæti Liverpool náð allt að sex stiga forskoti á toppnum, að því gefnu að liðinu takist að leggja Stoke að velli á Brittania leikvanginum í Stoke on Trent.
,,Við stefnum auðvitað að því að vinna leikinn, til að halda okkur á toppnum, því það er ljóst að hvert einasta stig er afar dýrmætt í baráttunni um titilinn. Við erum fullir sjálfstrausts þessa dagana og trúum því að við getum unnið hvaða lið sem verður á vegi okkar."
,,Liverpool hefur þurft að bíða lengi eftir því að vinna deildina, en nú trúum við því að biðin verði brátt á enda. Liðið er mjög gott og það stefna allir að sama markmiði: Að vinna deildina."
,,Við erum líka með í baráttunni í meistaradeildinni og FA-bikarnum og við vonumst auðvitað til þess að ná árangri þar líka, en hér hjá Liverpool vilja menn helst af öllu vinna Englandsmeistaratitilinn. Skiljanlega."
,,Árangur okkar yfir hátíðirnar var mjög þýðingarmikill. Það var erfið og þétt leikjadagskrá en við uppskárum vel og erum allir mjög ánægðir með það. En nú fer baráttan í deildinni af stað á ný og við verðum að halda áfram að spila vel. Það væri mjög sterkt fyrir okkur að vinna Stoke á laugardaginn, þá getum við slappað af og beðið rólegir eftir úrslitunum í viðureign Manchester United og Chelsea."
Það ætti þó að vera leikmönnum Liverpool algjörlega ljóst að Tony Pulis og lærisveinar hans hjá Stoke eru sýnd veiði en ekki gefin. Skemmst er að minnast þess að þeim tókst að krækja í eitt stig í viðureign liðanna á Anfield í haust. Þá sat Lucas á bekknum allan tímann.
,,Það var erfitt að horfa á leikinn í haust og mjög svekkjandi að þeim skyldi takast að hirða af okkur stig. Við vorum miklu betri, vorum til dæmis með boltann 70% af leiktímanum, en þeir voru rosalega þéttir fyrir aftast og okkur tókst ekki að brjóta vörn þeirra á bak aftur."
,,Þetta verður örugglega hörkuleikur, þeir eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni - eru í þriðja neðsta sætinu eins og er - þannig að þeir munu örugglega mæta okkur af fullri hörku. En við erum klárir í slaginn. Við vitum hvað við þurfum að gera og erum staðráðnir í að ná góðum úrslitum", segir Brasilíumaðurinn geðþekki að lokum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

