Hápunktur ársins 2008 - Númer 2
Á dögunum könnuðum við hvaða atburður nýliðins árs lesendum Liverpool.is þótti merkilegastur. Við förum nú yfir niðurstöðurnar. Þetta var talinn annar markverðasti atburðurinn.
Sigurinn á Manchester United - 17,74 %
13. september 2008. Stuðningsmenn Liverpool á Anfield Road og um víða veröld fögnuðu sætum sigri á Manchester United. Liverpool hafði fyrir þennan leik ekki unnið Manchester United á heimavelli í deildarleik frá því í nóvember 2001. Það breyttist þennan sólríka haustdag. Ensku meistararnir komust yfir en Rauði herinn sneri blaðinu við og vann frábæran sigur!


Spánverjinn Albert Riera leikur sinn fyrsta leik með Liverpool...

26. mínúta. Hann er á vettvangi þegar boltinn fer í Wes Brown og rúllar í átt að marki Manchester United...

Boltinn hafnar í markinu og staðan er orðin 1:1!

77. mínúta. Javier Mascherano eltir Ryan Giggs upp að endamörkum og kemur boltanum út í teig á Dirk Kuyt sem gefur fyrir markið.

Ryan Babel fær boltann fyrir miðju marki og skýtur að marki...

Boltinn svífur yfir tvo varnarmenn Manchester United og hafnar í markinu fyrir framan The Kop og Liverpool er komið yfir 2:1...
Ryan Babel fagnar sigurmarkinu með stuðningsmönnum Liverpool :-)

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

