| HI

Íslenskur Liverpool-trefill á vef Liverpool FC

Hróður íslenskra Púllara dreifist víða. Trefillinn sem félagar í Liverpoolklúbbnum fengu í jólagjöf fyrir rúmu ári prýðir nú auglýsingu á vef Liverpool FC fyrir sjónvarpsstöð félagsins.

Í auglýsingunni er lesandinn spurður hvort hann sitji ekki þægilega. Hægindastól hefur verið komið fyrir á Anfield og í stólnum liggur fjarstýring og íslenski trefillinn.

Þetta er trefill sem fréttaritari Liverpoolfc.tv, Jimmy Rice, fékk að gjöf frá Arngrími Baldurssyni ritstjóra LFCHistory.net þegar hann var í heimsókn í höfuðstöðvum LFC.tv fyrir skömmu. Trefillinn var settur upp á skrifstofu fréttaritarana og þeim hefur greinilega litist vel á gripinn.

Smellið hér til að sjá auglýsinguna.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan