| Birgir Jónsson

Kuyt: Erfiðisvinnan byrjar núna!


Dirk Kuyt var ánægður með að sjá Liverpool enda árið 2008 með þriggja stiga forskot á toppi Úrvalsdeildarinnar, en viðurkenndi að mesta erfiðisvinnan væri framundan.
Hollenski sóknarmaðurinn var í lykilhlutverki sem eini framherjinn í 5-1 niðurlægingunni á Newcastle United og fannst þetta frábær leið til að fullkomna jólatörnina.

"Það er frábært að vera á toppnum í enda árs," sagði hann við Liverpoolfc.tv.
"En þetta er bara byrjunin fyrir okkur. Við verðum að standa okkur í hverri viku og í hverjum leik og reyna að toppa framstöðuna í næsta leik á eftir. Ég naut þess virkilega að spila í framlínunni á ný. Því miður náði ég ekki að skora en ég mundi frekar vilja spila í liði eins og þessu og vinna 5-1, en að skora í hverri viku einhvers staðar annars staðar. Ég naut leiksins í botn og hann batt endahnút á góða jólatörn þar sem við náðum í sex mjög mikilvæg stig og skoruðum átta mörk."

Rauðliðar náðu tveggja marka forystu á St James´ Park með mörkum þeirra Steven Gerrard og Sami Hyypia - en leyfðu Newcastle að komast inn í leikinn þegar David Edgar skallaði í markið í uppbótartíma í fyrri hálfleik. Kuyt var óánægður að sjá Newcastle minnka muninn en fannst Liverpool ná aftur yfirhöndinni eftir hlé og geta auðveldlega hafa náð stærri sigri.

"Þetta voru frábær úrslit og við gátum skorað meira. Við byrjuðum leikinn mjög vel.
Við klúðruðum mörgum færum í byrjun en eftir það skoraði Stevie frábært mark eftir góða sendingu frá Yossi. Eftir það héldum við áfram að spila vel, náðum inn öðru marki og vorum mjög óheppnir að fá á okkur mark rétt fyrir hálfleiksflautið. En við náðum yfirhöndinni á ný í seinni hálfleik og þetta voru verðskulduð úrslit."

Kuyt hrósaði einnig fyrirliðanum Steven Gerrard, sem var enn og aftur maður leiksins.

"Stevie var frábær, en hann er það alltaf. Hann skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar. Hann er frábær fyrirliði og sýndi enn og aftur hvernig hann leiðir liðið áfram á ögurstundu - Það er ekki bara í þessum leik sem hann gerir það, heldur í hverjum leik. Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan