| Ólafur Haukur Tómasson

Hverjir gætu komið? Hluti II

Nú er árið 2009 hafið og félagskiptaglugginn opinn út mánuðinn. Undanfarin ár hefur Liverpool verið í þeim sporum í janúar glugganum að styrkja lið sitt til að halda í við toppliðin en þessa dagana er Liverpool í efsta sæti deildarinnar og munu ljúka árinu á toppi deildarinnar, svo nú þarf sennilega bara að styrkja liðið ef það ætlar að halda toppsætinu fram að lokadegi keppninar.

Talið er að Rafael Benítez muni ekki hafa miklar fjárhæðir til að eyða í janúar og gæti þurft að selja leikmenn til að fá að kaupa, en maður getur þó aldrei vitað fyrir víst hvort sá orðrómur standist þar sem oft hefur eitthvað komið manni á óvart í félagsskiptaglugganum. Hvort sem peningar verði til staðar eða ekki þá er alls ekki ólíklegt að einhverjir leikmenn muni halda á braut og ber þar einna helst að nefna Jermaine Pennant sem hefur ekki fengið tækifæri á tímabilinu og er orðaður við lið eins og Real Madrid, Blackburn og Tottenham, ekki er víst hvort að einhverjir fleiri gætu fylgt honum.

Hvað þarf samt að styrkja í liðinu sem situr á toppi deildarinnar, það eru líklega engar stórbreytingar í vændum heldur líklegast gætu komið einhverjir leikmenn til að auka samkeppnirnar um stöðurnar eða til að bæta einstaka stöðu. Leikmennirnir sem hafa verið orðaðir við félagið undanfarið eru ýmist hægri - eða vinstri bakverðir, hægri kantmenn eða sóknarmenn. Hér eru nokkrir leikmenn sem hafa verið orðaðir við Liverpool og hver veit nema einhverjir þeirra munu klæðast Liverpool treyju í mánuðinum.

Angel Lafita: Hann er 24 ára gamall Spánverji sem er á mála hjá Deportivo La Coruna. Hann leikur sem sókndjarfur miðjumaður eða kantmaður, en hann getur leikið á báðum hliðum vallarins.

Hann á að baki sér 41 leik með Real Zaragoza og 32 leiki fyrir Deportivo. Á tímabilinu hefur hann leikið átta leiki fyrir Deportivo og skorað fimm mörk í þeim leikjum. Angel er hraður og leikinn leikmaður, og einn af hans helstu kostum sem leikmaður er að hann er mjög góður í að gefa fyrir markið.

Mögulegt kaupverð á Angel er talið vera á bilinu 4-8 milljónir punda og að fá svona öflugan leikmann á svona lítinn pening það yrðu ágætis kaup, Rafael Benítez hefur nú áður komið á óvart með kaupum á lítt þekktum nöfnum eins og Alvaro Arbeloa og Albert Riera, en báðir komu þeir fyrir lítinn pening og hafa staðið sig vel.

Michael Owen: Hvaða stuðningsmaður Liverpool kannast ekki gamla 'gulldrenginn' frá Liverpool. Hann var í Liverpool frá árinu 1991 til ársins 2004, þar kom hann í gegnum Akademíu félagsins og lék 216 leiki fyrir aðalliðið og skoraði í þeim 118 mörk sem verður að teljast frábært afrek.

Owen vildi fá nýjan áraskoranir og breyta til en skömmu eftir að Rafael Benítez tók við liðinu þá gekk Owen til liðs við Real Madrid þar sem hann kom aðallega inn í liðið af bekknum en engu að síður skoraði hann 13 mörk í 35 leikjum, en hann átti í meiðslavandræðum síðan frá tíma sínum hjá Liverpool.

Hann snéri svo aftur í ensku Úrvalsdeildina og gekk til liðs við Newcastle United sem hann hefur leikið með í þrjú og hálft ár, leikið 59 leiki og skorað 25 mörk. Ferill hans hjá Newcastle hefur þó einkennst af meiðslum og hefur honum gengið illa að haldast heill en engu að síður þá hefur hann leikið mjög vel á líðandi tímabili og tekist að halda sér mest megnis heill.

Samingur hans hjá Newcastle rennur út í sumar og hefur hann gefið út að hann muni fresta ákvörðun sinni um að semja aftur við Newcastle þangað til í loka tímabils. Mörg lið eru sögð á eftir honum en þeirra á meðal eru Liverpool, Chelsea, Manchester United, Manchester City og Tottenham.

Með sterkum framherjum eins og Fernando Torres, Robbie Keane og Dirk Kuyt þá gæti hann náð að halda uppteknum hætti síðan hann var hjá Liverpool. Hann er góður í að koma sér í færi með því að taka við boltanum í fyrstu snertingu og mikill hraði hans gerði honum kleift að stinga varnarmenn andstæðinganna af. Hann er með mjög gott auga fyrir markinu og getur skorað úr ótrúlegustu færum, einnig sem að hann er þrusu góður skallamaður þrátt fyrir hæð.

Ef Liverpool, eða eitthvað annað lið, vill freista þess að fá Owen í janúar þá er talið að Newcastle gæti tekið tilboði í hann sem gæti hljómað upp á 3-6 milljónir punda. Þó svo að Rafael Benítez hafi neitað þeim sögum að hann muni kaupa Owen þá veit maður aldrei hvað mun komast til með að gerast.

Jakub Błaszczykowski: Hann er gjarnan kallaður Kuba og það er meðal annars það sem hann hefur aftan á treyju sinni. Hann er 23 ára gamall og leikur með Borussia Dortmund í þýsku Bundesligunni. Hann leikur sem sókndjarfur hægri bakvörður og hægri kantmaður.

Hann á að baki sér 51 leik með Wisla Krakow í heimalandi sínu, Pólandi, og 41 leik fyrir Borussia Dortmund. Hann hefur leikið 19 landsleiki með Pólandi frá árinu 2006 og var hann valinn í leikmannahópinn sem tók þátt í Evrópumótinu en hann varð að draga sig úr liðinu vegna meiðsla.

Hann var orðaður við Liverpool undir loka félagskiptagluggans í sumar og hefur verið það reglulega síðan. Kaupverðið á honum er talið vera frá 5-8 milljónir punda.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan