| Ólafur Haukur Tómasson
TIL BAKA
Hverjir gætu komið? Hluti I
Nú er árið 2008 að ljúka og þann 1. janúar næst komandi mun félagskiptaglugginn opna aftur og þannig mun það vera út mánuðinn. Undanfarin ár hefur Liverpool verið í þeim sporum í janúar glugganum að styrkja lið sitt til að halda í við toppliðin en þessa dagana er Liverpool í efsta sæti deildarinnar og munu ljúka árinu á toppi deildarinnar, svo nú þarf sennilega bara að styrkja liðið ef það ætlar að halda toppsætinu fram að lokadegi keppninar.
Talið er að Rafael Benítez muni ekki hafa miklar fjárhæðir til að eyða í janúar og gæti þurft að selja leikmenn til að fá að kaupa, en maður getur þó aldrei vitað fyrir víst hvort sá orðrómur standist þar sem oft hefur eitthvað komið manni á óvart í félagsskiptaglugganum. Hvort sem peningar verði til staðar eða ekki þá er alls ekki ólíklegt að einhverjir leikmenn muni halda á braut og ber þar einna helst að nefna Jermaine Pennant sem hefur ekki fengið tækifæri á tímabilinu og er orðaður við lið eins og Real Madrid, Blackburn og Tottenham, ekki er víst hvort að einhverjir fleiri gætu fylgt honum.
Hvað þarf samt að styrkja í liðinu sem situr á toppi deildarinnar, það eru líklega engar stórbreytingar í vændum heldur líklegast gætu komið einhverjir leikmenn til að auka samkeppnirnar um stöðurnar eða til að bæta einstaka stöðu. Leikmennirnir sem hafa verið orðaðir við félagið undanfarið eru ýmist hægri - eða vinstri bakverðir, hægri kantmenn eða sóknarmenn. Hér eru nokkrir leikmenn sem hafa verið orðaðir við Liverpool og hver veit nema einhverjir þeirra munu klæðast Liverpool treyju eftir áramót.
Glen Johnson: Þessi öflugi hægri bakvörður Portsmouth er mikið orðaður við Liverpool þessa dagana og segja fréttablöð í Englandi að liðin hafi komist að samkomulagi um skipti Johnson til Liverpool sem mun greiða níu milljónir punda fyrir hann. Í sömu fréttum segja að leikmaðurinn gæti klárað félagskiptin í vikunni og nú þegar hafi leikmaðurinn farið í skoðunarferð um Melwood svæðið.
Hann er 24 ára gamall en hefur átt mjög góðan feril og á að baki sér 15 leiki með West Ham, 42 með Chelsea og 69 fyrir Portsmouth, sem og 10 landsleiki með Enska landsliðinu. Þannig eins og sést þá er hann mjög reyndur ensku Úrvalsdeildinni.
En hvað er það sem hann hefur fram yfir Alvaro Arbeloa sem hefur leikið nær óaðfinnanlega í bakvarðarstöðunni hjá Liverpool? Jú, til að byrja með er hann enskur og stuðningsmönnum liðanna í deildinni finnst yfirleitt skemmtilegra að hafa fleiri heimamenn í liði sem nær árangri. Hann er líka sóknarsinnaðri og gæti lífgað meir upp á sóknarleik liðsins heldur en Arbeloa, þó svo að hann sé fínn sóknarlega og hefur skapað mikla hættu í kringum teig andstæðingana á tímabilinu. Einnig er Johnson á mjög góðum aldri og í liði eins og Liverpool gæti hann blómstrað enn meir en hann hefur gert hjá Portsmouth, því gætu þetta orðið frábær skipti bæði fyrir Liverpool og hann sjálfan.
Gareth Bale: Lengst af á tímabilinu þá hafði vinstri bakvarðarstaðan verið mikið gagnrýnd þar sem sem að Fabio Aurelio er enn ekki laus við þrálát meiðsli og Andrea Dossena hefur ekki sýnt sitt rétta andlit síðan hann kom til félagsins í sumar. Hins vegar hefur Emiliano Insua leikið í vinstri bakvarðarstöðunni í mánuðinum og hefur hann verið í byrjunarliðinu þrjá leiki í röð og staðið sig mjög vel, hugsanlega gæti hann verið notaður meira skuli annar þeirra Dossena eða Aurelio yfirgefa félagið.
En Wales-verjinn Gareth Bale hefur verið orðaður við Liverpool í vetur og gæti alls ekki verið ólíklegt að muni vandræðin í þessari stöðu leysast þá gæti Liverpool reynt að krækja í hann.
Bale lék með Southampton og vakti gífurlegan áhuga frá liðum eins og Liverpool, Manchester United og Tottenham, en hann gekk til liðs við það síðastnefnda. Þar sem að staða Tottenham í deildinni er langt frá því að vera góð er talað um að hann og fleiri leikmenn Tottenham séu þreyttir á stöðunni og séu farnir að horfa hýru auga á önnur lið.
Bale er aðeins nítján ára gamall en á að baki sér 40 leiki með aðalliði Southampton og nítján fyrir Tottenham. Styrkur Bale felst aðallega í því hversu sterkur hann er fram á við en hann er gífurlega skotfastur og mjög góður skotmaður, í rauninni svipar honum mikið til John Arne Riise þegar kemur að því að negla á markið og Liverpool menn þekkja það nú hvað best hvernig mörk hann skoraði þegar hann lék með liðinu.
Það sem hins vegar gæti reynst Liverpool erfitt er að kaupverðið á honum gæti verið í hærri kantinum, líklegast á bilinu 10-16 milljónir punda en maður veit þó aldrei nema verðið gæti verið prúttað niður. Þannig að miðað við kaupverðið þá verður að teljast meiri líkur á að hann myndi koma í sumar ef að hann myndi þá yfirhöfuð koma til félagsins. Án nokkurs vafa þá yrði þetta gífurlegur styrkur við sterka varnarlínu liðsins.
Aaron Lennon: Þessi strákur hefur í gegnum tíðina verið sagður undir smásjá Rafael Benítez og núna, eins og með Gareth Bale, gæti hann verið að horfa hýru auga á stærri lið eins og staðan hjá Tottenham er í dag.
Hann er 21 árs gamall og leikur á hægri kantinum. Hann hefur leikið 38 leiki fyrir Leeds United og 102 leiki fyrir Tottenham. Lennan er alls ekki hávaxinn því hann er í kringum 165 cm á hæð en hann bætir það alveg upp með miklum hraða og krafti, en margir telja hann einn af hraðari leikmönnum deildarinnar.
Talið er að verðmiðinn á Lennon gæti verið í kringum 10-12 milljónir punda en þar sem Tottenham eru sagðir hafa áhuga á Jermaine Pennant þá hafa verið orðrómar um að Liverpool muni bjóða Tottenham að fá Pennant og pening í stað Lennon. Ef að þeim skiptum yrði þá gætu það orðið ágætis breytingar hjá báðum leikmönnum, Pennant fengi líklegast meiri spilatíma hjá Tottenham og Lennon fengi að freista gæfunnar hjá stórliði eins og Liverpool.
En eins og áður segir þá gæti verðmiðinn á honum verið í kringum 10 milljónir punda eða meira og ef Liverpool gæti ekki freistað Tottenham með tilboði sem inniheldur Pennant og pening þá er ekki pottþétt að Liverpool muni borga tilsetta upphæð ef að takmarkaðir peningar verði til staðar og gæti snúið sér að ódýrari kostum í öðrum deildum.
Hann gæti hins vegar komið með aukna fjölbreytni í leikmannahóp Liverpool þar sem að hann er ekki ósvipaður leikmaður og Pennant að mörgu leyti, en það er nær víst að dagar Pennant hjá Liverpool eru taldir og gæti Liverpool notið góðs af því að fá hæfileikaríkan enskan kantmann til liðsins.
Emile Heskey: Þetta er nafn sem flestir stuðningsmenn Liverpool ættu að kannast við enda lék hann með liðinu frá árinu 2000 til ársins 2004 og var seldur rétt áður en Rafael Benítez tók við liðinu. Á sínum tíma lék hann 150 leiki með Liverpool og skoraði 39 mörk, þar lék hann við hlið Michael Owen í framlínunni og þóttu þeir öflugt teymi þar sem að Heskey bjó til mikið pláss og færi fyrir Owen, sem sá þá um markaskorunina.
Heskey sem er þrítugur hefur gífurlega mikla reynslu úr Úrvalsdeildinni og hefur hann leikið 449 leiki í deildinni og skorað 108 mörk. Hann hefur lengi verið í enska landsliðshópnum og eftir að Fabio Capello tók við stjórnun landsliðsins þá hefur hann verið fastamaður í hópnum og staðið sig með sóma. Hann hefur leikið 50 landsleiki og skorað fimm mörk.
Hann er 188 cm á hæð og er mjög sterkur en frekur hraður miðað við hæð og þyngd. Hann er ekki mesti markaskorarinn í bransanum en hann er gífurlega vinnusamur og klókur í að búa til færi fyrir samherja sína. Hans helsti styrkur er hversu góður skallamaður hann er og gæti hann komið með nýjan valkost í framherja hóp liðsins.
Samningur hans við Wigan rennur út í sumar og því getur hann farið á frjálsri sölu eftir tímabilið en mörg lið eru á eftir honum svo einhver þeirra eiga eftir að reyna að fá hann ódýrt í janúar og alls ekki er ólíklegt að Wigan muni taka tilboðinu þar sem að það yrði mikið áfall fyrir félagið að missa hann og fá engan pening í staðinn. Meðal þeirra liða sem eru sögð á eftirr framherjanum kraftmikla eru Liverpool, Chelsea, Manchester City og Tottenham.
Hann hefur áður sagst vilja spila undir stjórn Rafael Benítez þar sem hann fékk ekki tækifæri til þess og að ef að tækifæri á að ganga aftur til liðs við Liverpool byðist þá myndi hann hiklaust hoppa á það. Þó svo að Heskey gerði fullt af góðum hlutum fyrir félagið á sínum tíma þá eru mjög blendin viðbrögð hjá stuðningsmönnum liðsins þegar talað er um að Heskey gæti snúið aftur á rauða hluta Merseyside.
Talið er að Rafael Benítez muni ekki hafa miklar fjárhæðir til að eyða í janúar og gæti þurft að selja leikmenn til að fá að kaupa, en maður getur þó aldrei vitað fyrir víst hvort sá orðrómur standist þar sem oft hefur eitthvað komið manni á óvart í félagsskiptaglugganum. Hvort sem peningar verði til staðar eða ekki þá er alls ekki ólíklegt að einhverjir leikmenn muni halda á braut og ber þar einna helst að nefna Jermaine Pennant sem hefur ekki fengið tækifæri á tímabilinu og er orðaður við lið eins og Real Madrid, Blackburn og Tottenham, ekki er víst hvort að einhverjir fleiri gætu fylgt honum.
Hvað þarf samt að styrkja í liðinu sem situr á toppi deildarinnar, það eru líklega engar stórbreytingar í vændum heldur líklegast gætu komið einhverjir leikmenn til að auka samkeppnirnar um stöðurnar eða til að bæta einstaka stöðu. Leikmennirnir sem hafa verið orðaðir við félagið undanfarið eru ýmist hægri - eða vinstri bakverðir, hægri kantmenn eða sóknarmenn. Hér eru nokkrir leikmenn sem hafa verið orðaðir við Liverpool og hver veit nema einhverjir þeirra munu klæðast Liverpool treyju eftir áramót.
Glen Johnson: Þessi öflugi hægri bakvörður Portsmouth er mikið orðaður við Liverpool þessa dagana og segja fréttablöð í Englandi að liðin hafi komist að samkomulagi um skipti Johnson til Liverpool sem mun greiða níu milljónir punda fyrir hann. Í sömu fréttum segja að leikmaðurinn gæti klárað félagskiptin í vikunni og nú þegar hafi leikmaðurinn farið í skoðunarferð um Melwood svæðið.
Hann er 24 ára gamall en hefur átt mjög góðan feril og á að baki sér 15 leiki með West Ham, 42 með Chelsea og 69 fyrir Portsmouth, sem og 10 landsleiki með Enska landsliðinu. Þannig eins og sést þá er hann mjög reyndur ensku Úrvalsdeildinni.En hvað er það sem hann hefur fram yfir Alvaro Arbeloa sem hefur leikið nær óaðfinnanlega í bakvarðarstöðunni hjá Liverpool? Jú, til að byrja með er hann enskur og stuðningsmönnum liðanna í deildinni finnst yfirleitt skemmtilegra að hafa fleiri heimamenn í liði sem nær árangri. Hann er líka sóknarsinnaðri og gæti lífgað meir upp á sóknarleik liðsins heldur en Arbeloa, þó svo að hann sé fínn sóknarlega og hefur skapað mikla hættu í kringum teig andstæðingana á tímabilinu. Einnig er Johnson á mjög góðum aldri og í liði eins og Liverpool gæti hann blómstrað enn meir en hann hefur gert hjá Portsmouth, því gætu þetta orðið frábær skipti bæði fyrir Liverpool og hann sjálfan.
Gareth Bale: Lengst af á tímabilinu þá hafði vinstri bakvarðarstaðan verið mikið gagnrýnd þar sem sem að Fabio Aurelio er enn ekki laus við þrálát meiðsli og Andrea Dossena hefur ekki sýnt sitt rétta andlit síðan hann kom til félagsins í sumar. Hins vegar hefur Emiliano Insua leikið í vinstri bakvarðarstöðunni í mánuðinum og hefur hann verið í byrjunarliðinu þrjá leiki í röð og staðið sig mjög vel, hugsanlega gæti hann verið notaður meira skuli annar þeirra Dossena eða Aurelio yfirgefa félagið.
En Wales-verjinn Gareth Bale hefur verið orðaður við Liverpool í vetur og gæti alls ekki verið ólíklegt að muni vandræðin í þessari stöðu leysast þá gæti Liverpool reynt að krækja í hann.Bale lék með Southampton og vakti gífurlegan áhuga frá liðum eins og Liverpool, Manchester United og Tottenham, en hann gekk til liðs við það síðastnefnda. Þar sem að staða Tottenham í deildinni er langt frá því að vera góð er talað um að hann og fleiri leikmenn Tottenham séu þreyttir á stöðunni og séu farnir að horfa hýru auga á önnur lið.
Bale er aðeins nítján ára gamall en á að baki sér 40 leiki með aðalliði Southampton og nítján fyrir Tottenham. Styrkur Bale felst aðallega í því hversu sterkur hann er fram á við en hann er gífurlega skotfastur og mjög góður skotmaður, í rauninni svipar honum mikið til John Arne Riise þegar kemur að því að negla á markið og Liverpool menn þekkja það nú hvað best hvernig mörk hann skoraði þegar hann lék með liðinu.
Það sem hins vegar gæti reynst Liverpool erfitt er að kaupverðið á honum gæti verið í hærri kantinum, líklegast á bilinu 10-16 milljónir punda en maður veit þó aldrei nema verðið gæti verið prúttað niður. Þannig að miðað við kaupverðið þá verður að teljast meiri líkur á að hann myndi koma í sumar ef að hann myndi þá yfirhöfuð koma til félagsins. Án nokkurs vafa þá yrði þetta gífurlegur styrkur við sterka varnarlínu liðsins.
Aaron Lennon: Þessi strákur hefur í gegnum tíðina verið sagður undir smásjá Rafael Benítez og núna, eins og með Gareth Bale, gæti hann verið að horfa hýru auga á stærri lið eins og staðan hjá Tottenham er í dag.
Hann er 21 árs gamall og leikur á hægri kantinum. Hann hefur leikið 38 leiki fyrir Leeds United og 102 leiki fyrir Tottenham. Lennan er alls ekki hávaxinn því hann er í kringum 165 cm á hæð en hann bætir það alveg upp með miklum hraða og krafti, en margir telja hann einn af hraðari leikmönnum deildarinnar.
Talið er að verðmiðinn á Lennon gæti verið í kringum 10-12 milljónir punda en þar sem Tottenham eru sagðir hafa áhuga á Jermaine Pennant þá hafa verið orðrómar um að Liverpool muni bjóða Tottenham að fá Pennant og pening í stað Lennon. Ef að þeim skiptum yrði þá gætu það orðið ágætis breytingar hjá báðum leikmönnum, Pennant fengi líklegast meiri spilatíma hjá Tottenham og Lennon fengi að freista gæfunnar hjá stórliði eins og Liverpool.En eins og áður segir þá gæti verðmiðinn á honum verið í kringum 10 milljónir punda eða meira og ef Liverpool gæti ekki freistað Tottenham með tilboði sem inniheldur Pennant og pening þá er ekki pottþétt að Liverpool muni borga tilsetta upphæð ef að takmarkaðir peningar verði til staðar og gæti snúið sér að ódýrari kostum í öðrum deildum.
Hann gæti hins vegar komið með aukna fjölbreytni í leikmannahóp Liverpool þar sem að hann er ekki ósvipaður leikmaður og Pennant að mörgu leyti, en það er nær víst að dagar Pennant hjá Liverpool eru taldir og gæti Liverpool notið góðs af því að fá hæfileikaríkan enskan kantmann til liðsins.
Emile Heskey: Þetta er nafn sem flestir stuðningsmenn Liverpool ættu að kannast við enda lék hann með liðinu frá árinu 2000 til ársins 2004 og var seldur rétt áður en Rafael Benítez tók við liðinu. Á sínum tíma lék hann 150 leiki með Liverpool og skoraði 39 mörk, þar lék hann við hlið Michael Owen í framlínunni og þóttu þeir öflugt teymi þar sem að Heskey bjó til mikið pláss og færi fyrir Owen, sem sá þá um markaskorunina.
Heskey sem er þrítugur hefur gífurlega mikla reynslu úr Úrvalsdeildinni og hefur hann leikið 449 leiki í deildinni og skorað 108 mörk. Hann hefur lengi verið í enska landsliðshópnum og eftir að Fabio Capello tók við stjórnun landsliðsins þá hefur hann verið fastamaður í hópnum og staðið sig með sóma. Hann hefur leikið 50 landsleiki og skorað fimm mörk.Hann er 188 cm á hæð og er mjög sterkur en frekur hraður miðað við hæð og þyngd. Hann er ekki mesti markaskorarinn í bransanum en hann er gífurlega vinnusamur og klókur í að búa til færi fyrir samherja sína. Hans helsti styrkur er hversu góður skallamaður hann er og gæti hann komið með nýjan valkost í framherja hóp liðsins.
Samningur hans við Wigan rennur út í sumar og því getur hann farið á frjálsri sölu eftir tímabilið en mörg lið eru á eftir honum svo einhver þeirra eiga eftir að reyna að fá hann ódýrt í janúar og alls ekki er ólíklegt að Wigan muni taka tilboðinu þar sem að það yrði mikið áfall fyrir félagið að missa hann og fá engan pening í staðinn. Meðal þeirra liða sem eru sögð á eftirr framherjanum kraftmikla eru Liverpool, Chelsea, Manchester City og Tottenham.
Hann hefur áður sagst vilja spila undir stjórn Rafael Benítez þar sem hann fékk ekki tækifæri til þess og að ef að tækifæri á að ganga aftur til liðs við Liverpool byðist þá myndi hann hiklaust hoppa á það. Þó svo að Heskey gerði fullt af góðum hlutum fyrir félagið á sínum tíma þá eru mjög blendin viðbrögð hjá stuðningsmönnum liðsins þegar talað er um að Heskey gæti snúið aftur á rauða hluta Merseyside.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

