Hrakfarir varaliðsins halda áfram
Hrakfarir Englandsmeistaranna halda áfram. Varalið Liverpool tapaði enn einum leiknum í gærkvöldi þegar það laut í gras á útivelli fyrir Bolton.
Gary Ablett tefldi fram óreyndu liði og þremenningana Stephen Darby, Jay Spearing og Martin Kelly vantaði að sjálfsögðu eftir að þeir léku í Eindhoven í fyyrakvöld. Leikmenn Liverpool mættu gríðarlega ákveðnir til leiks og Krisztian Nemeth kom Liverpool yfir á 20. mínútu þegar hann skoraði með góðu skoti eftir að hafa spilað þríhyrning við Gerardo Bruna. Fyrsta mark Ungverjans á leiktíðinni en hann er aðeins búinn að leika þrjá leiki. Hans hefur verið sárt saknað. Liverpool átti leikinn fram að leikhléi en náði ekki að bæta við fleiri mörkum. Það var vel varið frá Gerardo og Damien Plessis skallaði yfir úr upplögðu færi.
Heimamenn léku betur eftir og allt fór á versta veg fyrir Liverpool. Vörn Liverpool hélt þó lengi vel og Martin Hansen stóð fyrir sínu í markinu. Allt fór þó á versta vel á 62. mínútu þegaar Daniel Ayala var rekinn af velli fyrir gróft brot. Eftir þetta átti Liverpool mjög erfitt uppdráttar og tveimur mínútum seinna jafnaði Pólverjinn Ebi Smolarek með föstu skoti. Á 70. mínútu skoraði Ebi aftur og nú af stuttu færi. Liverpool barðist vel á lokakafla leiksins og hefði átt að fá vítaspyrnu þegar Krisztian var felldur. En allt kom fyrir ekki og þrátt fyrir betri leik en oft á leiktíðinni tapaði varaliðið enn einum leiknum.
Liverpool: Martin Hansen, Emmanuel Gomis Mendy (Alex Kacaniklic 87. mín.), Michael Scott, Mikel San Jose Dominguez, Ronald Huth, Damien Plessis, Ryan Crowther (Andras Simon 83. mín.), Daniel Ayala, Krisztian Nemeth, Gerardo Bruna og Vincent Weijl (Jordy Brouwer 77. mín.). Ónotaðir varamenn: Dean Bouzanis og Adam Pepper.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Krisztian Nemeth. Sóknarmaðurinn átti líflegan leik og náði forystu með laglegu marki.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
Liverpool mun nú vera í þriðja neðsta sæti af ellefu liðum með aðeins sjö stig. Sunderland leiðir deildina.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

