Nýjar hetjur Liverpool
Það hefur liðið frekar langur tími síðan uppaldir leikmenn úr Bítlaborginni hafi náð að gera sér framtíð með aðalliði Liverpool en margir leikmenn í unglinga- og varaliði félagsins lofa góðu. Þrír leikmenn voru kallaðir upp í aðalliðið fyrir skömmu og þreyttu þeir frumraun sína í Meistaradeildinni í góðum sigri Liverpool á PSV í Hollandi, það eru þeir Stephen Darby, Martin Kelly og Jay Spearing. Allir komu þeir inn á sem varamenn í síðari hálfleik og þóttu þeir allir standa sig með miklum sóma.
Rafael Benítez var ánægður með frammistöður þeirra í leiknum og hafði hann þetta að segja um þá eftir leikinn: ,,Einn af jákvæðu hlutunum úr leiknum er að sjá þessa þrjá ungu pilta koma inn á og þreyta frumraun sína. Það er mjög gott að hafa leikmenn eins og Darby, Spearing og Kelly til að koma inn á af bekknum í Meistaradeildinni.
Það er alltaf gott að geta notað uppalda leikmenn frá félaginu og þeir stóðu sig allir vel í frumraun sinni í Meistaradeildinni. Allt gekk upp og ég var mjög ánægður með frammistöðuna í heild sinni. Það var mikið jákvætt fyrir félagið og framtíð þess."
Jamie Carragher, veit vel hvað strákarnir eru að ganga í gegnum enda hefur hann leikið fjöldann allan af leikjum fyrir uppeldisfélag sitt: "Þetta er erfitt. Þetta er erfiðara núna heldur en þegar ég byrjaði því Liverpool er betra lið núna. Við erum taldir eitt besta lið Evrópu og það gerir það töluvert erfiðara fyrir yngri leikmenn sem eru að reyna að komast í liðið. Þetta er áskorunin sem bíður þeirra svo það var gott að sjá þá fá smá tíma á vellinum gegn PSV. Ekki misskilja mig, leikurinn var sennilega unninn þegar þeir komu inn en þeir voru ekki órólegir á neinn hátt og þeir stóðu sig mjög vel.
Að spila fyrir Liverpool í Meistaradeildinni er eitthvað sem þeir munu muna út ævina. Jay sagði mér að hann hafði fengið 37 skilaboð eftir leikinn svo það sýnir hversu ánægð fjölskylda hans og vinir eru, og það er eins með okkur alla - við erum mjög ánægðir með þá."
Þó enn sé snemmt liðið á feril þeirra hjá félaginu þá lofa þeir mjög góðu. Hér koma nokkrar upplýsingar um þessa bráðefnilegu stráka sem að miklar vonir eru bundnar við.
Stephen Darby: Hann spilar sem varnarmaður og þá helst sem hægri bakvörður. Stephen var fyrirliði í sigursælu unglingaliði Liverpool sem varð Unglingabikarmeistari árið 2006.Hann útskrifaðist úr Akademíunni sumarið 2006 og var færður á Melwood ásamt fjórum öðrum liðsfélögum sínum úr unglingaliðinu. Darby var í sigurliði unglingaliðsins sem vann Unglingabikarinn tvö ár í röð með því að leggja Man City og Man Utd í úrslitaleikjunum, hann var fyrirliði liðsins í úrslitunum árið 2006.
Hann var fyrst valinn í aðalliðshópinn þegar Liverpool ferðaðist til Tyrklands og lék gegn Galatasaray í desember 2006, en hann kom ekki inn á í leiknum. Þó svo að hann var á bekknum í aðalliðinu þá gleymdi hann ekki hvar hann festi rætur sínar og eftir að fjögurra tíma flug frá Istanbul til Liverpool hélt hann beint á Hawthorns völlinn og lék heilan leik plús uppbótatíma og hjálpaði unglingaliðinu að komast í fjórðu umferð bikarkeppninar.
Á síðustu leiktíð var Darby fyrirliði varaliðsins sem urðu norðurhluta- og landsmeistarar. Frammistaða hans á leiktíðinni þénaði honum verðskuldað hrós frá varaliðsþjálfaranum Gary Ablett og kallaði hann Darby "herra stöðugleiki".
Frumraun hans í aðalliði Liverpool var í deildarbikarnum 12. nóvember 2008 þegar hann kom inn á sem skiptimaður í tapleik gegn Tottenham. Frumraun hans í Meistaradeild Evrópu var í sigurleiknum á PSV 9. desember 2008 þegar hann kom inn á sem skiptimaður.
Hann hefur leikið tvo leiki með undir 19 ára landsliði Englendinga og var í hópi þeirra sem tók þátt í Evrópumóti undir 19 ára landsliða. Þrír aðrir leikmenn Liverpool voru í hópi Englands á mótinu, það voru Jack Hobbs, Craig Lindfield og Adam Hammill.
Darby lék nokkra leiki á undirbúningstímabilinu og þótti frammistaða hans í þeim leikjum mjög áhugaverð, og má segja að þau tækifæri sem hann hefur fengið á tímabilinu séu mjög verðskulduð. Hann er tvítugur að aldri og leikur í treyju númer 32.
Jay Spearing: Hann getur spilað á miðjunni eða úti á kanti. Jay var fyrirliði ungligaliðs Liverpol sem vann Unglingabikarinn 2007. Hann er eins og Darby, tuttugu ára gamall og hefur komið í gegnum Akademíu Liverpool. Þrátt fyrir að hann sé frekar lávaxinn, aðeins 168 cm á hæð þá bætir hann það upp með gífurlegum líkamsstyrk og krafti.
Hann útskrifaðist úr Akademíunni sumarið 2007 eftir að hafa átt góðan áratug þar. Hann var eins og áður segir fyrirliði unglingaliðsins sem vann Unglingabikarinn 2007, en árið áður lenti hann í því leiðindar atviki að fótbrotna og missti af miklu á því tímabili en náði engu að síður að koma inn á sem skiptimaður þegar Liverpool lagði Man City í úrslitaleiknum. Hann var mikilvægur leikmaður í sterku unglingaliði liðsins sem vann titilinn tvö ár í röð.
Í maí árið 2007 var hann valinn besti leikmaðurinn á Torneo di Renate mótinu eftir að lið Liverpool skipað leikmönnum 20 ára og yngri léku gegn liðum eins og AC Milan og Parma í þeim aldursflokki.
Hann lék einnig stórt hlutverk í varaliðinu þegar þeir unnu varaliðsdeildina á síðasta tímabili og skoraði hann nokkur glæsileg mörk á því tímabili.
Staða Spearing á vellinum hefur breyst í gegnum árin en hann var varnarmaður í gegnum mest alla Akademíuna en hefur færst framar á völlinn og leikur núna sem miðju- eða kantmaður.
Frumraun hans með aðalliðinu var þegar hann kom inn á sem skiptimaður í viðureign PSV og Liverpool 9. desember árið 2008 en hann tók þátt í nokkrum æfingaleikjum liðsins í sumar og hefur staðið sig með prýði í þeim leikjum sem hann hefur leikið með liðinu. Jay leikur í treyju númer 26.
Martin Kelly: Hann er hávaxinn en fágaður varnarmaður sem getur spilað allar stöður í varnarlínunni. Hann missti af öllu tímabilinu 2005-06 vegna bakmeiðsla . Árið 2007-08 komst hann inní varaliðið og hjálpaði hann liðinu að verða deildarmeistari.
Meiðslin gerðu honum erfitt fyrir og þurfti hann að leggja tvöfalt harðar að sér til að ná hinum leikmönnunum að formi og getu: "Meiðslin hafa gert mig ákveðnari. Að hafa misst af þessum tveimur árum þýddi að ég hafði misst af miklu í þróun minni. Ég var heppinn þegar ég fékk tækifæri á að koma til Melwood og ég held að koma mín hingað þýðir að ég hafi lagt þróast tvöfalt hraðar en ég átti von á." sagði Kelly.
Kelly þreytti frumraun sína með aðalliðinu og frumraun sína í Meistaradeildinni 9. desember 2008 í sigurleik á PSV. Kelly sem er átján ára gamall spilar í treyju númer 34.
Það eru margir efnilegir enskir leikmenn í unglingaliðum félagsins og eru þetta aðeins þeir þrír sem hafa tekið þátt í leikjum liðsins á tímabilinu en alls ekki má gleyma þeim leikmönnum sem eru miklar vonir bundnar við og ber þar helst að nefna Craig Lindfield, Paul Anderson, Adam Hammill, Jack Hobbs og David Martin, en flestir þeirra eru lánsmenn í neðri deildum landsins.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

