Enn tapar varaliðið
Enn tapar varalið Liverpool. Nú tapaðist heimaleikur við Blackburn Rovers 1:0. Englandsmeistararnir eru nú meðal neðstu liða og liðið er ekki svipur hjá sjón miðað við síðustu leiktíð.
Liverpool hafði reyndar unnið og gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum og hóf þennan leik vel en það voru gestirnir sem skoruðu á 17. mínútu. Emmanuel Mendy braut þá klaufalega á Aaron Doran inni í vítateig og dæmd var vítaspyrna. Alan Judge skoraði úr vítaspyrnunni. Liverpool sótti meira fram að leikhléi en fá færi sköpuðust. Varnarmaðurinn Mikel San Jose fékk besta færið en hann skallaði yfir. Blackburn hafði því forystu í hálfleik.
Liverpool reyndi allt hvað hægt var til að jafna í síðari hálfleik en Blackburn varðist vel. Daniel Pacheco átti góð tilþrif þegar hann reyndi að vippa yfir Mark Bunn í markinu en honum tókst að verja. Daniel átti svo gott skot sem var bjargað í horn. Gestirnir vörðust og tóku litla áhættu. Liverpool náði ekki að brjóta vörnina á bak aftur og þar við sat. Liverpool situr því nærri botni deildarinnar sem liðið vann á síðustu leiktíð. Liðin mætast aftur á laugardaginn og vonandi verður þá annað uppi á teningnum.
Liverpool: Peter Gulacsi, Emmanuel Gomis Mendy, Stephen Darby (Steven Irwin 46. mín.), Mikel San Jose Dominguez, Ronald Huth, Damien Plessis, Gerardo Bruna (Jordy Brouwer 75. mín.), Jay Spearing, Krisztian Nemeth, Daniel Pacheco og Vincent Weijl (Ryan Crowther 60. mín.). Ónotaðir varamenn: Martin Hansen og Daniel Ayala.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Daniel Pacheco. Sýndi brot af því sem hann getur í slökum leik liðsins hans Gary Ablett.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

