Forsíða

Frétt

26.11.2008 15:11 | Heimir Eyvindarson

Breyttar áherslur koma sér illa fyrir Babel

Ryan Babel segist vera fórnarlamb breyttra áherslna hjá Rafael Benítez á þessu tímabili - en Benítez hrærir nú mun minna í liðinu en áður. Babel tekur þó skýrt fram að hann vilji ekki fara frá félaginu.

Rafa hefur dregið mjög úr róteringum á þessu tímabili og því hefur Babel mátt bíta í það súra epli að hafa einungis verið fjórum sinnum í byrjunarliðinu í vetur. Þessar breyttu áherslur Benítez hafa mælst vel fyrir og ekki er annað að sjá en að þær virki, því síðan Úrvalsdeildin hóf göngu sína í ágúst 1992 hefur liðið aldrei byrjað betur.

Þessar breyttu áherslur hafa leitt til þess að Hollenski landsliðsmaðurinn hefur nú fengið færri tækifæri en á sama tíma á síðasta tímabili, en hann lék þó fullar 90 mínútur í sigurleik liðsins gegn Marseille í meistaradeildinni í september og vonast því að sjálfsögðu til að fá tækifæri á nýjan leik í kvöld, en þá mæta frakkarnir á Anfield.

Hinn 21 árs gamli Babel viðurkennir að hann þyrsti í að spila meira og honum finnst hann hafa sýnt næga þolinmæði.

,,Það eru breyttir tímar núna, Benitéz róterar liðinu ekki eins mikið og áður, og ég er einfaldlega fórnarlamb þess", segir Babel. En liðið er á sigurbraut, svo það er skiljanlegt að stjórinn haldi sig við núverandi skipulag. Það eru hinsvegar u.þ.b. 60 leikir á hverju tímabili og ég fæ sífellt að heyra að ég verði bara að halda áfram að standa mig og bíða eftir tækifærinu. En mér finnst ég hafa sýnt næga þolinmæði. Ég vil spila!"

,,Með hverjum leik verður maður betri og þróar sinn leik. Á bekknum gerist ekki neitt. Auðvitað verð ég vonsvikinn þegar ég er ekki valinn í liðið. En ég vil samt ekki fara frá félaginu. Samningur minn rennur ekki út fyrr en 2012 og ég ætla að halda áfram að berjast fyrir tilverurétti mínum hér. Ég gefst ekki svo auðveldlega upp", segir Ryan Babel að lokum.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin