Fernando Torres er í draumalandi sínu!
Fernando Torres segist vera í draumalandi sínu og það er hjá Liverpool! Honum finnst frábært að spila á Englandi og hann er stoltur af að spila með Liverpool. Hann sagði þetta í viðtali við The Independant.
"Það var ekkert auðvelt að aðlagast öllu hérna en núna vil ég hvergi annars staðar vera. Enska Úrvalsdeildin er miklu betri en Spænska deildin. Maður á kannski að spila á móti liði sem er fallbaráttu. Samt er leikið á góðum velli og áhorfenda stæðin eru troðfull og mótherjarnir eru komnir til leiks með það að markmiði að spila knattspyrnu. Þó svo að liðið tapi þá styðja stuðningsmenn liðsins við bakið á liðinu sínu þar til yfir lýkur. Þetta gerist bara í bresku knattspyrnunni."
Best þykir Fernando þó að spila á heimavelli Liverpool fyrir framan stuðningsmenn Rauða hersins.
"Félagið er tákn borgar þar sem fólkið hefur þurft að hafa fyrir lífinu. Allir í borginni eru stoltir af liðinu sínu. Leikmenn, sem spila með öðrum félögum, vilja koma hingað til Liverpool því þeir vita að þetta félag er sannarlega stórfenglegt og einstakt. Það er enginn leikvangur enskari, ef svo má að orði komast, en Anfield. Fólkið sem kemur á leikvanginn til að horfa á liðið sitt lifir fyrir knattspyrnuna. Það komast bara rétt tæplega 45.000 áhorfendur á leikvanginn en hávaðinn sem áhorfendur mynda færir mann svo mikinn kraft að manni finnst að maður hafi vængi á fótunum."
Fernando Torres var dýrkaður og dáður hjá Atletico Madrid og var ekkert mikið að velta því fyrir sér að yfirgefa uppeldisfélagið sitt. Hann stóðst þó ekki mátið þegar Rafael Benítez hafði samband við hann og sagði honum að hann vildi fá hann til Liverpool.
"Rafa Benítez hringdi í farsímann minn. Til að byrja með hélt ég að sá sem var í símanum væri að herma eftir Rafa. Ég hringdi því í Pepe Reina og fékk símanúmerið hjá Rafa til að vera alveg viss um að þetta hefði verið hann sem hringdi í mig. Eftir að það lá fyrir hugsaði ég mig ekki tvisvar um. Ég fann á mér að þetta var símtalið sem ég hafði beðið eftir. Ég fór svo til Liverpool og var innilokaður í íbúð í tvo daga. Ég yfirgaf íbúðina bara til að fara í læknispróf. Í íbúðinni var fullt af bókum, mynddiskum og öðru sem tengdist félaginu. Af og til leit fólk frá félaginu inn og spjallaði við mig og svaraði .eim spurningum sem ég hafði fram að færa. Þetta var alveg magnað."
Fernando hefur oft dáðst af stuðningsmönnum Liverpool. Hann er sjálfur alinn upp við frekar kröpp kjör og hann skilur því vel fólkið sem leggur mikið á sig til að fylgjast með liðinu sínu.
"Ég mun aldrei gleyma einu atviki. Ég var nýlega kominn hingað og var að fara yfir götu. Þar sem ég var gaf maður sig á tal við mig. Hann sagðist vinna alla vikuna með eitt að markmiði og það væri að komast á völlinn og upplifa ánægjuna sem biði hans þar."
Þetta viðtal er mjög samhljóða viðtali sem Fernando Torres átti við spænsku útvarpsstöðina Radio Marca í vor. Þar hafði hann þetta að segja um stuðningsmenn Liverpool.
"Það hefur verið mjög auðvelt fyrir mig að koma mér fyrir hérna og venjast öllu. Þetta sést best á því hversu vel mér hefur gengið úti á vellinum. Í raun átti ég von á því að það tæki mig lengri tíma að festa mig í sessi hérna en mér hefur verið hjálpað mikið. Það hefur sitt að segja hversu leikmennirnir fá mikinn stuðning frá áhorfendum. Allir leikmennirnir, frá Pepe og til sóknarmannanna, finna fyrir stuðningnum því áhorfendur syngja nöfnin þeirra og standa þétt við bakið á þeim. Fólk ber líka mikla virðingu fyrir manni hérna. Sem dæmi þá var ég staddur í stórmarkaði núna í morgun. Stuðningsmennirnir þar voru rólegir og þeir ruddust ekki að manni. Þeir gáfu sig bara á tal við mig og óskuðu mér til hamingju með hversu vel mér hefði gengið og báðu um að fá að taka myndir af sér með mér. Ég hitti líka fullt af stuðningsmönnum Everton þegar ég er á gangi úti á götu en eru aldrei leiðinlegir við mig. Ég á mér þann draum að fólkið hérna muni aldrei gleyma mér!"

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

