| Birgir Jónsson

Carragher biður um þolinmæði

Jamie Carragher hvetur stuðningsmennina á Anfield til að vera þolinmóða, nú þegar Liverpool sækist eftir fyrsta deildartitli sínum síðan árið 1990.

Það var baulað á liðið þegar það gekk af velli á Anfield eftir svekkjandi jafntefli gegn Fulham. Carragher lætur það ekki slá sig út af laginu og biður stuðningsmennina, sem eru orðnir örvæntingarfullir í bið sinni eftir fyrsta titlinum í 18 ár, um stillingu, og hann trúir því jafnframt að þeir ættu ekki að missa trúna þrátt fyrir bakslag svo snemma á leiktíðinni.

"Stuðningsmennirnir, sérstaklega á Anfield, þrá svo heitt að við vinnum, að það skilar sé stundum niður á völlinn. Þeir verða að skilja að það er nóvember, og það er ekki enn kominn mars eða apríl. Þeir eru ákafir í að vinna titilinn eins og við leikmennirnir, en stundum getur ákefðin borið þig ofurliði. Við verðum öll að vera þolinmóð. Þetta er langt kapphlaup og það er ekki heimsendir þó við gerum jafntefli á heimavelli í nóvember. Ekki misskilja mig, stuðningsmennirnir eru frábærir. Þeir ásamt okkur leikmönnunum verðum að átta okkur á að við verðum að sýna þolinmæði."

Á síðasta tímabili fóru möguleikar Liverpool í vaskinn vegna margra tapaðra stiga á Anfield.
Og Carragher kyngir því að Liverpool megi búast við því að fleiri lið komi á Anfield og reyni á þolrif heimamanna.

"Við getum ekki leyft okkur að vera annað hvort uppi í skýjunum eða langt niðri vegna úrslita í nóvember. Þetta er mjög langt kapphlaup, og ég er viss um að það verði fleiri leikir eins og leikurinn gegn Fulham. Jafnvel þótt við hefðum unnið Stoke fyrr á tímabilinu og Fulham á laugardaginn, þá mundu lið samt koma á Anfield og hafa allt liðið bak við boltann og verjast. Ég er viss um að sama er uppi á teningnum hjá Chelsea á Stamford Bridge. Að sjálfsögðu viltu vinna þessa leiki. En þú getur ekki tekið það of mikið inn á þig þegar það gerist ekki, því þetta er erfið deild. Ég held að fólk ætti ekki að hugsa of mikið um þessi úrslit. Það er bara nóvember og það er enn langur vegur framundan."

Steven Gerrard sem sat uppi í stúku á laugardaginn vegna nárameisla, snýr líklega aftur í byrjunarliðið fyrir heimaleikinn gegn Marseille í meistaradeildinni á morgun. Sigur tryggir Liverpool áfram í 16-liða úrslit keppninnar og Gerrard hefur sagt að hann sé knúinn áfram af þrá til að sýna að sigurinn í Istanbúl 2005 verði ekki eina slíka minningin.

"Istanbúl var besta stund mín og klúbbsins í langan tíma", sagði fyrirliðinn. "En það knýr mig áfram að reyna að jafna árangurinn í Istanbúl, ef ekki bæta hann. Mig langar ekki að lifa á þeim leik. Ég held að ef við vinnum ekkert meira þá mundi ég sjá eftir því. Liverpool eiga að vera í Evrópu. Já, þú verður að vinna þér það inn að vera þarna, saga okkar, fjöldi Evrópubikara, þetta er okkar leiksvið, þarna viljum við vera. Leikmenn fyrir okkar kynslóð gerðu það, og stuðningsmennirnir ætlast til þess sama af okkur."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan