Jafnt hjá varaliðinu
Varalið Liverpool gerði í gærkvöldi jafntefli á útivelli við Newcastle United. Heimamenn jöfnuðu á síðustu mínútu leiksins og komu þannig í veg fyrir að Liverpool næði öðrum sigri sínum í röð.
Fyrri hálfleikurinn var fjörugur og bæði lið fengu færi en það var Liverpool sem komst yfir undir lok hálfleiksins. Hollendingurinn Vincent Weijl sneri þá á varnarmann Newcastle og lék inn í teig þaðan sem hann skoraði með nákvæmu skoti. Ekkert gekk hjá liðunum framan af seinni hálfleik. Á 62. mínútu fékk Nabil El Zhar, sem kom inn sem varamaður hjá aðalliðinu um helgina, gott færi til að tryggja Liverpool sigur. Hann komst þá inn á teig og lék á Steven Harper í markinu en færið var þröngt og hann hitti ekki markið. Daniel Pacceho komst svo í gott færi litlu síðar en skot hans fór framhjá. Á 70. mínútu kom Ungverjinn Krisztian Nemeth inn á sem varamaður og glöddust allir, sem tengdust Liverpool, yfir því enda hefur hann ekkert leikið á leiktíðinni vegna meiðsla. Hefur munað um minna því Ungverjinn var frábær á síðustu leiktíð. Ekki var útlit fyrir fleiri mörk þar til Andy Carroll jafnaði metin með skalla eftir aukaspyrnu á lokamínútunni. Enn tókst varaliði Liverpool ekki að sigra og leikmenn gátu nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki gert út um leikinn þegar tækifæri var til. Liðið tapaði þó ekki og hefur nú leikið tvo leiki án taps sem er framför!
Liverpool: Peter Gulacsi, Emmanuel Gomis Mendy (Francisco Duran, 66. mín.), Emiliano Insua, Mikel San Jose Dominguez, Daniel Ayala, Damien Plessis, Nabil El Zhar, Steven Irwin, Andras Simon (Krisztian Nemeth, 70. mín.), Daniel Pacheco (Gerardo Bruna, 74. mín.) og Vincent Weijl. Ónotaðir varamenn: Dean Bouzanis og Andre Wisdom.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Steven Irwin átti traustan leik í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með varaliðinu.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

