| Sf. Gutt

Liverpool getur orðið Englandsmeistari!

Margir sparkspekingar telja að Liverpool muni ekki geta orðið enskur meistari þrátt fyrir að liðið hafi leitt deildina í rúman mánuð. Alan Hansen, fyrrum leikmaður Liverpool er ekki sammála. Hann telur að gamla liðið sitt geti unnið 19. Englandsmeistaratitil sinn í vor. 

"Það er mjög auðvelt að gera sér í hugarlund hversu stuðningsmönnum Liverpool er farin að leiðast biðin eftir enska meistaratitlinum sem ekki hefur unnist frá því árið 1990. Það hefur ekki dregið úr gremju stuðningsmannanna að liðið þeirra hefur sjaldan verið með í baráttunni um titilinn á þessum tíma. Liverpool hefur leikið mjög vel á þessari leiktíð. Ef maður horfir á liðið sést að það er sterkara en það hefur verið árum saman. Liðsheildin er sterkari og það er mikil samheldni í liðinu. Það lítur ekki út fyrir að liðið muni brotna saman þótt álagið verði mikið og þeirra besta lið getur staðist öllum liðum snúning. Chelsea og Manchester United hafa sterkari liðshópa og hafa unnið meistaratitilinn. Það eru því miklar prófraunir framundan fyrir Rafael Benítez og leikmenn hans."

"Á undanförnum árum, hef ég sagt, að Liverpool hafi ekki verið í nógu sterkri stöðu þegar dregur að lokum leiktíðarinnar. Það veit því enginn hvernig leikmenn liðsins muni í raun bregðast við ef þeir verða í þeirri stöðu þegar álagið eykst jafnt og þétt. En miðað við hvað sést hefur til liðsins hingað til þá lítur nú út fyrir að liðið búi yfir nægum styrk til að ráða við það álag. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Liverpool og stuðningsmenn liðsins að nú verði gerð hörð atlaga að titlinum til loka. Liðið er er í góðri stöðu og það hefur sýnt að það getur unnið titilinn í þetta skiptið. Hryggjarstykkið í liðinu var mótað á síðustu leiktíð. Pepe Reina er frábær markvörður. Jamie Carragher er framúrskarandi í hjarta varnarinnar. Javier Mascherano ver vörnina vel á miðjunni og þeir Steven Gerrard og Fernando Torres eru leikmenn í heimsklassa. Liðsheild Liverpool hefur svo styrkst á þessari leiktíð og núna virðist liðið vera orðið nógu sterkt til að láta verulega að sér kveða í toppbaráttunni í Úrvalsdeildinni."

"Xabi Alosno sem hefði getað farið á liðinu sumri, ef Rafael Benítez hefði keypt Gareth Barry frá Aston Villa, hefur ekki spilað betur frá því hann kom til félagsins árið 2004. Dirk Kuyt hefur alltaf lagt geysilega hart að sér en maður hefur stundum spurt sig hvað meira hann gefi af sér. Á þessari leiktíð hefur hann leikið miklu betur og hann hefur líka skorað mikilvæg mörk. Það hefur lengi verið þörf á að styrkja kantspilið vinstra megin og nú hefur Albert Riera komið og gert það. Í fullkomnum heimi þá vildi maður kannski sjá bakverðina sókndjarfari. Þrátt fyrir það þá finnst mér liðið virkilega sterkt."

Þetta er brot úr pistli sem Alan Hansen skrifaði á vefsíðu BBC. Þess skal getið að pistillinn var skrifaður fyrir jól.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan