| Ólafur Haukur Tómasson
Hollendingurinn öflugi Ryan Babel hefur viðurkennt óánægju sína yfir því hve fá tækifæri hann hefur verið að fá hjá liðinu á tímabilinu. Hann hefur slegið í gegn sem svokallaður 'ofurvaramaður' vegna þess hve mikið hann getur breytt leikjum þegar hann kemur inná.
Hann átti til dæmis stóran þátt í að tryggja Liverpool sigur á Arsenal í Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili og skoraði sigurmarkið gegn Manchester United fyrr í vetur, bæði skiptin eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Babel, sem er 21 árs gamall, hefur yfirleitt verið stillt upp sem kantmanni undir stjórn Rafael Benítez viðurkennir það að hann er óánægður með stöðu sína í aðalliðinu.
"Ég er þokkalega sáttur með frammistöður mínar en staðan er skýr - ég er ekki einn af byrjunarliðsmönnunum. Það er erfitt, ég verð ósáttur en get sagt við sjálfan mig að ég er aðeins 21 árs gamall og er á upphafi ferils míns.
En þetta er erfitt fyrir mig vegna þess að eftir því sem tíminn líður þá segja þeir mér trekk í trekk að ég er ungur og tími minn mun koma. Jæja, allt í lagi en ég er ekki leikmaður sem vill bíða. Ég vill vera viðloðinn liðinu núna frekar en eftir þrjú eða fjögur ár." sagði Ryan Babel.
Þetta er ekki það eina sem að er að angra Babel en hann vill frekar berjast við Robbie Keane og Fernando Torres um stöðu framherja fremur en að spila úti á vængnum.
"Ég hef alltaf sagt að ég vilji vera framherji. Auðvitað myndi það ekki hjálpa mér að bæta mig ef ég gæti ekki spilað eða æft í annari stöðu í einhver skipti. En allan tíman?
Ég spilaði sem framherji í Hollandi og ólst upp sem slíkur. Það er staðan sem ég vil spila. En ég er að vinna í því. Ég lít frekar á sjálfan mig áður en ég fer að ásaka aðra. Ég mun gera eitthvað varðandi þetta. Það er ekki eitthvað sem ég er hræddur um." bætti Babel við.
Það leynir sér ekki í þessu viðtali að Ryan sé ekki sáttur með stöðu sína í liðinu og kanski engin ástæða fyrir Rafael Benítez að breyta uppstillingu sinni og skipta út leikmönnum á þessum tímapunkti þar sem að liðið hefur verið á miklu skriði undanfarið. En það eru enn margir leikir eftir af tímabilinu og mun Ryan án nokkurs vafa fá sinn skerf af leikjum.
TIL BAKA
Babel orðinn óþolinmóður
Hollendingurinn öflugi Ryan Babel hefur viðurkennt óánægju sína yfir því hve fá tækifæri hann hefur verið að fá hjá liðinu á tímabilinu. Hann hefur slegið í gegn sem svokallaður 'ofurvaramaður' vegna þess hve mikið hann getur breytt leikjum þegar hann kemur inná. Hann átti til dæmis stóran þátt í að tryggja Liverpool sigur á Arsenal í Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili og skoraði sigurmarkið gegn Manchester United fyrr í vetur, bæði skiptin eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Babel, sem er 21 árs gamall, hefur yfirleitt verið stillt upp sem kantmanni undir stjórn Rafael Benítez viðurkennir það að hann er óánægður með stöðu sína í aðalliðinu.
"Ég er þokkalega sáttur með frammistöður mínar en staðan er skýr - ég er ekki einn af byrjunarliðsmönnunum. Það er erfitt, ég verð ósáttur en get sagt við sjálfan mig að ég er aðeins 21 árs gamall og er á upphafi ferils míns.
En þetta er erfitt fyrir mig vegna þess að eftir því sem tíminn líður þá segja þeir mér trekk í trekk að ég er ungur og tími minn mun koma. Jæja, allt í lagi en ég er ekki leikmaður sem vill bíða. Ég vill vera viðloðinn liðinu núna frekar en eftir þrjú eða fjögur ár." sagði Ryan Babel.
Þetta er ekki það eina sem að er að angra Babel en hann vill frekar berjast við Robbie Keane og Fernando Torres um stöðu framherja fremur en að spila úti á vængnum.
"Ég hef alltaf sagt að ég vilji vera framherji. Auðvitað myndi það ekki hjálpa mér að bæta mig ef ég gæti ekki spilað eða æft í annari stöðu í einhver skipti. En allan tíman?
Ég spilaði sem framherji í Hollandi og ólst upp sem slíkur. Það er staðan sem ég vil spila. En ég er að vinna í því. Ég lít frekar á sjálfan mig áður en ég fer að ásaka aðra. Ég mun gera eitthvað varðandi þetta. Það er ekki eitthvað sem ég er hræddur um." bætti Babel við.
Það leynir sér ekki í þessu viðtali að Ryan sé ekki sáttur með stöðu sína í liðinu og kanski engin ástæða fyrir Rafael Benítez að breyta uppstillingu sinni og skipta út leikmönnum á þessum tímapunkti þar sem að liðið hefur verið á miklu skriði undanfarið. En það eru enn margir leikir eftir af tímabilinu og mun Ryan án nokkurs vafa fá sinn skerf af leikjum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

