Sammy Lee hefur haft góð áhrif
Rafael Benítez er mjög ánægður með að hafa fengið Sammy Lee sér til aðstoðar. Hann fékk Sammy í þjálfaralið sitt í vor og litli eldhuginn hefur komið ýmsu til leiðar sem hefur verið til bóta. Sammy gekkst til dæmis fyrir því að settar voru upp myndir úr glæstri sögu félagsins í húsakynnin á Melwood þar sem leikmenn Liverpool æfa. Hann lét líka útbúa tilvitnanir um kyngi The Kop frá mönnum á borð við Diego Maradona, Johan Cruyff og John Terry. Þetta allt á að blása leikmönnum baráttu og eldmóð í brjóst og Rafael Benítez finnst vel hafa tekist til.
"Þetta eru allt góð skilaboð til leikmanna og það er gott fyrir þá að sjá myndir af goðsögnum félagsins á Melwood. Ég held að þetta geti allt saman verið þeim hvatning. Sammy hefur komið með þann anda og það hugarfar sem fyrrum leikmenn félagsins, sem þekkja félagið út og inn, eiga með sér. Hann býr sjálfur yfir miklum eldmóði og mikilli jákvæðni. Hann hefur verið mjög góð viðbót við hópinn hérna."
Það þarf enginn að efast um að það var snjallræði að fá Sammy Lee aftur til starfa hjá Liverpool. Betri maður hefði varla fundist til að vera Rafael Benítez til halds og trausts.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

