Rafa stjóri októbermánaðar
Rafa Benítez hlaut í dag nafnbótina knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku Úrvalsdeildinni fyrir októbermánuð. Liðið vann fjóra leiki í röð í deildinni á mánuðinum og komst m.a. á topp deildarinnar.
Glæsileg endurkoma gegn Manchester City þar sem 3-2 sigur vannst, annar 3-2 sigur á Wigan á heimavelli, frábær sigur á Chelsea á Stamford Bridge og svo 1-0 sigur á Portsmouth á heimavelli voru þeir fjórir leikir sem unnust í mánuðinum.
,,Ég er mjög ánægður með að hafa hlotið þennan heiður fyrir hönd starfsliðs míns vegna þess að þeir eru að standa sig vel. Menn eins og Sammy Lee, Mauricio Pellegrino, Xavi Valero og Paco Di Miguel," sagði Benítez í dag. ,,Þetta er mikilvægt fyrir starfsliðið og sérstaklega vegna þess að liðið er að spila vel - maður verður ekki stjóri mánaðarins nema að liðið sé að vinna sigra."
,,Þetta þýðir að félagið er í góðri stöðu. Vonandi getum við fengið fleiri svona verðlaun vegna þess að það þýðir að við munum vera í góðri stöðu í lok tímabilsins."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

