| Ólafur Haukur Tómasson

Rafa í viðræðum um nýjan samning

Eigendur Liverpool, Tom Hicks og George Gillett, höfðu samband við Rafael Benítez í vikunni til að hrósa honum fyrir góðan árangur liðsins á tímabilinu og til að ræða við hann um nýjan samning. Rafael á nú tæplega eitt og hálft ár eftir af samningi sínum hjá félaginu.

Rafael Benítez sagði þetta við opinbera heimasíðu Liverpool: "Ég fékk upphringingu frá Tom Hicks og hann talaði líka fyrir hönd George Gillett. Þeir töluðu um að funda með ráðgjöfum mínum og hefja viðræður um framlengingu á samningi mínum. Þetta eru jákvæðar fréttir.

Við ákváðum að funda í næstu viku og nú eru ráðgjafar mínir í sambandi við þá. Við höfum ekki rætt um lengd samningsins en við ræddum um þetta og viljum finna lausn á þessu sem allra fyrst.

Hvað mig varðar þá er þetta auðveld ákvörðun. Ég vil vera hér áfram og ég er núna þar sem ég vil vera. Þetta er mjög einfalt. Ég og fjölskyldan mín vitum hversu vel stuðningsmennirnir hafa reynst okkur. Félagið er á uppleið og við stefnum á að reisa nýjan leikvang. Það er margt skemmtilegt framundan.

Ég vil vera hér í langan tíma og ég væri auðvitað til í að vera hérna þegar nýi leikvangurinn opnar. Um daginn var ég að grínast með það að ég yrði virkilega ánægður ef þeir byðu mér 20 ára samning."

Rafael bætti við: "Liðið er í mjög góðri stöðu og þetta verður alveg fullkomið ef ég þarf ekki að svara fleiri spurningum um samninginn minn. Á  síðustu tveimur eða þremur blaðamannafundum hef ég verið spurður um samningamálin. Það er mikilvægt að allt sé á hreinu.

Eigendurnir vita að okkur gengur vel núna. Andrúmsloftið hérna er mjög gott, við erum á toppnum í deildinni og líka í riðlinum okkar í Meistaradeildinni. Liðið er að leika mjög vel."

Þeir George Gillett og Tom Hicks eru sagðir mjög ánægðir með gengi liðsins það sem af er liðið tímabilsins og í yfirlýsingu af þeirra hálfu var sagt:

"Rafa heldur áfram að vinna gott verk, við erum mjög ánægðir með árangurinn hjá liðinu og okkur hlakkar til að ræða við hann og ráðgjafa hans um framlengingu á samningi hans."

Þetta eru mjög jákvæðar fréttir fyrir Liverpool enda er liðið búið að taka miklum framförum undir stjórn Rafael Benítez,  Einnig hefur félagið hafið viðræður við Daniel Agger um framlengingu á samningi hans og talið er næst muni vera framlengt við Dirk Kuyt, en þeir eiga einnig aðeins tæplega eitt og hálft ár eftir af samningum sínum.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan