Heimaformið er lykillinn
Pepe Reina bendir á að heimaformið muni verða liðinu mikilvægt á komandi mánuðum. Sigur gegn Portsmouth á miðvikudagskvöldið tryggði 3 stig og segir Reina að liðið megi ekki tapa stigum á heimavelli ef þeir ætli sér að vera í toppbaráttunni í maí.
,,Þetta voru gríðarlega mikilvæg þrjú stig vegna þess að við verðum að halda áfram að vinna," sagði Reina. ,,Þegar maður er á toppnum í deildinni þá verður maður að gera allt sem maður getur til að verja þá stöðu sem þýðir að maður verður að vinna alla leiki sem maður getur."
,,Við megum ekki við því að tapa stigum á heimavelli. Það er mikilvægt að halda áfram að sigra þar og halda einnig stöðugleika á útivöllum."
Reina hafði ekki mikið að gera í leiknum gegn Portsmouth en varaði liðsfélaga sína við því að erfiðari leikur bíður gegn Tottenham Hotspur, á laugardag, - sem komu til baka úr stöðunni 3-1 og 4-2 gegn Arsenal og náðu 4-4 jafntefli.
,,Við getum aðeins tekið eitt skref í einu og næsti leikur er gegn Tottenham á laugardaginn, sem verður mjög erfiður leikur. Þeir náðu frábærum úrslitum gegn Arsenal og við vitum að þetta verður erfitt. En við skulum sjá hvort við náum ekki að sigra þá og eftir það getum við þá hugsað um leikinn í Meistaradeildinni og svo vonandi einbeitt okkur enn meira að Úrvalsdeildinni."
,,Þetta er það sem við leitumst við að gera - verjast vel og fá ekki á okkur mörg færi. Í hvert skipti sem ég geng útá völlinn vonast ég eftir rólegum leik vegna þess að það er betra fyrir mig og liðið ef ég hef minna að gera."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

