Ykkar skoðun
Á dögunum könnuðum við hvaða leikmaður ykkur, lesendum Liverpool.is, þótti standa sig best í september.
Fyrir valinu hjá ykkur varð Spánverjinn Fernando Torres. Valið kemur nokkuð á óvart því Fernando skoraði bara tvö mörk í þessum mánuði og var nokkuð frá sínu besta í flestum leikjum sínum. Hann hrökk hins vegar í gang í síðasta leik mánaðarins þegar hann skoraði bæði mörk Liverpool í sigrinum góða á Goodison Park. Líklega hefur það afrek hans verið mörgum í fersku minni! Annar í valinu varð Steven Gerrard sem stóð fyrir sínu í september og allir muna eftir markinu hans frábæra í Marseille. Hollendingurinn Dirk Kuyt varð í þriðja sæti en hann lék vel í mörgum leikjum í mánuðinum.
Það vakti athygli að næstum fimm af hundraði vildu velja einhvern annan leikmann en hægt var að velja. Vanalega er þetta hlutfall lægra. Við munum því miður aldrei vita hvaða leikmenn voru í áliti hjá þessum af lesendum okkar!
Hér er niðurstaðan úr könnuninni!
Fernando Torres 34,92 %
Steven Gerrard 29,72 %
Dirk Kuyt 16,90 %
Jamie Carragher 6,32 %
Einhver annar 4,83 %
Ryan Babel 4,15 %
Robbie Keane 3,16 %
Heildarfjöldi atkvæða: 1615.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

