| Sf. Gutt

Rafa hælir Xabi

Til stóð í mest allt sumar að Evrópumeistarinn Xabi Alonso myndi yfirgefa Liverpool. Hann fór þó ekki fet og hefur leikið mjög vel á leiktíðinni. Rafael Benítez er mjög ánægður með landa sinn.

"Það sem gerðist í sumar með Xabi Alonso er bara hluti af knattspyrnunni. Maður er alltaf að hugsa um að breyta og bæta liðinu. En það skiptir engu hvort ég skipti um skoðun um að selja leikmann eða hvort leikmaðurinn sjálfur gerir það. Það sem skiptir máli fyrir mig sem framkvæmdastjóra er að ég hafi góðan leikmann sem er góður atvinnumaður. Ég nota hann svo eins og kemur liðinu best. Hann spilar núna með okkur og við reynum að fá það besta út úr honum. Hann er líka búinn að vera að sýna hvað í honum býr og við vissum alltaf hversu góður leikmaður hann er. Við seldum hann ekki í sumar því við vildum fá hærra verð fyrir svona góðan leikmann. Svona er leikmannamarkaðurinn og þetta er ekkert flókið. Hann er búinn að sýna mikla ákveðni og það er gott að hafa keppni um allar stöður í liðinu. Xabi Alonso er að spila vel núna og það sama gildir um liðið."

Rafael er mjög ánægður með hversu vel Xabi er búinn að spila á þessari leiktíð. Í framhaldi af góðri framgöngu hans datt Rafa gott ráð í hug."

"Kannski segi ég bara slatta af leikmönnum að ég sé að hugsa um að selja þá því það gæti hugsanlega orðið til þess að þeir færu að spila jafn vel og Xabi!"

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan