Steven og Fernando valdir í úrvalslið
Undanfarin ár hefur farið fram val á liði ársins og leikmanni ársins af FifPro. Atvinnuknattspyrnumenn um allan heim taka þátt í kjörinu og munu rúmlega 57.500 hafa kosið.
Tveir leikmenn Liverpool eru í liði ársins að þessu sinni. Þetta eru þeir Fernando Torres og Steven Gerrard. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir félagar eru valdir í úrvalslið á þessu ári. Þeir voru líka valdir í úrvalslið atvinnumanna á Englandi í vor. Steven hefur áður verið valinn í úrvalslið þetta.
Hérna er úrvalslið FifPro 2008:
Markmaður: Iker Casillas (Spáni/Real Madrid)
Varnarmenn: Sergio Ramos (Spáni/Real Madrid); John Terry (Englandi/Chelsea); Carles Puyol (Spáni/ Barcelona); Rio Ferdinand (Englandi/Manchester United).
Miðvallarleikmenn: Steven Gerrard (Englandi/Liverpool); Xavi (Spáni/Barcelona); Kaka (Brasilíu/AC Milan).
Framherjar: Lionel Messi (Argentínu/Barcelona); Fernando Torres (Spáni/Liverpool); Cristiano Ronaldo (Portúgal/Manchester United).
Evrópumeistarar Spánverja eiga flesta leikmenn í úrvalsliðinu eða fimm talsins.
Portúgalinn Cristiano Ronaldo var valinn Fifpro leikmaður ársins 2008.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

