| Sf. Gutt

Liverpool á góða möguleika á meistaratitlinum!

Liverpool er núna í efsta sæti efstu deildar. Alan Hansen, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að gamla félagið hans eigi núna mjög góða möguleika á að vinna enska meistaratitilinn en sá góði titil hefur ekki unnist frá því leiktíðina 1989/90. Þess má geta að Alan var þá fyrirliði Liverpool. 

"Á mánudagsmorguninn töldu veðbankar Liverpool enn þriðja sigurstranglegasta liðið í Úrvalsdeildinni og ég er svo sem sammála því áliti. Mér finnst þó líklegra að Liverpool geti unnið titilinn en ég taldi í upphafi leiktíðarinnar."

"Liðið hefur virkilega hrifið mig á köflum en aldrei þó eins og á sunnudaginn þegar það lagði Chelsea að velli. Ég hef nú fulla trú á að liðið geti unnið meistaratitilinn."

"En ef liðið á að geta komið á óvart og vinna titilinn þá verður liðið að geta unnið fjórar tegundir af leikjum og það virðist vera að liðið sé að ná tökum á því. Í fyrsta lagi þá verður liðið að geta unnið leiki þegar það spilar illa. Í annan stað þarf að vera hægt að vinna leiki þegar liðið lendir undir. Það tókst gegn Middlesbrough, Manchester City og Wigan. Svo þarf að taka ákveðna áhættu í leikjum gegn lakari liðum. En aðalmálið á leiktíðinni verður að ná stigum af helstu keppinautunum en liðinu hefur gengið slaklega gegn Manchester United, Chelsea og Arsenal á síðustu leiktíðum."

"Gegn Manchester United, fyrr á leiktíðinni, lenti liðið 1:0 undir og átti erfitt uppdráttar en náði að sigra með því að sýna frábæran leik. Hápunktur leiktíðarinnar hingað til var þó sigurinn gegn liðinu hans Luiz Felipe Scolari núna á sunnudaginn. Liverpool sýndi stórgóðan leik á Stamford Bridge. Liðið spilaði sterkan varnarleik í klukkutíma og eftir það var hugmyndabanki Chelsea svo til tæmdur. Þegar upp var staðið má segja að það var bara annað liðið sem var líklegt til að skora og það var Liverpool. Þessi leikur bar leikaðferð Rafael Benítez fagurt vitni og hann sneri alveg á Luiz á þeim vettvangi."

"Rafael er búinn að komast að því að hann þarf að leggja meiri áherslu á sóknarleikinn. Hann setur líka öryggið á oddinn eins og vel sást á sunnudaginn og það þarf að gera þegar það á við. En þegar liðið lenti undir gegn meisturum United á Anfield spilaði liðið af meiri grimmd og jók sóknarþungann. Liðsheildin er sterk en það er ekki hægt að vinna örugga sigra gegn minni liðunum nema að taka ákveðna áhættu."

"Það er enn mikið eftir af leiktíðinni og ekkert lið hefur unnið meistaratitilinn í október en núna eru góð teikn á loft. Núna er mikið meira sjálfstraust í liði Liverpool en verið hefur og liðið hefur vaxið og styrkst saman."

Þetta er brot úr grein sem birtist á vefsíðu BBC.

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan