| Ólafur Haukur Tómasson

Hetjurnar okkar: Hluti IV

Þessa dagana voru flestir aðalliðsmenn Liverpool á ferðalagi með landsliðum sínum, opinber heimasíða félagsins ákvað að nýta tækifærið og kynnast varaliðinu enn betur. Síðan hefur rætt við nokkra af efnilegri leikmönnum félagsins og nú er talað við nokkra þeirra um hetjur þeirra úr fótboltanum.

Í dag verður rætt við þrjá af mörgum spennandi leikmönnum sem hafa verið uppgvötaðir af útsendurum Liverpool á síðustu árum.

Vincent Weijl 
 

Hver var hetjan þín sem barn? Johan Cruyff og Zinedine Zidane. Tæknin hans Zidane var svo góð og gerði honum kleift að skora mörg frábær mörk. Ef ég ætti að velja einn Hollenskan leikmann þá yrði ég að velja Cruyff, þrátt fyrir það að hann var spilandi langt fyrir minn aldur.
 
Ertu einn af þeim sem að leitar að uppáhalds leikmönnunum þínum á YouTube? Já, ég leita að myndböndum af Zidane, Ronaldinho og Lionel Messi. Kanski líka Cristiano Ronaldo og Robin van Persie. Maður getur lært af þessum leikmönnum en í sannleika sagt þá er ég með hugann við að bæta mig varnarlega fremur en að æfa 'skærin' og slíka hluti.

Er eitthvað sérstakt atvik með Zidane eða Cruyff sem að stendur upp úr hjá þér? Ég hef séð Evrópumótin þar sem að Cruyff spilaði, og auðvitað Heimsmeistaramótið árið 1978 þegar við komumst í úrslit.

                                                                                                       Ryan Crowther 
 


Hver er hetjan þín? Georgie Kinkladze sem að var í Man City . Ég dýrka hvernig hann rakti boltann og tók menn á. Þar sem ég er kantmaður líka þá reyni ég að byggja leik minn á því. Ég var með nafnið hans aftan á treyjunni minni.
 
Hver er fyrsta minningin sem þú átt af honum? Ég held að það hafi verið leikur gegn Manchester United. Hann tók marga leikmenn á og lék síðan á markvörðinn. Það var alveg ótrúlegt.

 

Jordy Brouwer
 

litmanen_happy.jpg


Hver var hetjan þín í æsku? Ég studdi Ajax og á þeim tíma þá voru þeir með mjög gott lið. Uppáhaldsleikmaðurinn minn var Jari Litmanen, sem að spilaði með liðinu þá. Hann var svo klókur í að spila á milli línanna og fyrsta snertingin hans var frábær. Hann virtist alltaf vera í réttu stöðunni. Á eftir honum þá var það Ronaldo - sá Brasilíski.
 
Er eitthvað atvik sem að stendur upp úr við að sjá Jari spila? Það eru fullt af leikjum sem koma til greina en á tímabilinu 1994-1995 þá horfði ég á alla Meistaradeildaleikina með Ajax og ég hef þá alla á spólu heima. Ég horfi stundum á þér enn þá vegna þess að þetta er það flott.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan