Hetjurnar okkar: Hluti II
Þessa dagana eru flestir aðalliðsmenn Liverpool á ferðalagi með landsliðum sínum, opinber heimasíða félagsins ákvað að nýta tækifærið og kynnast varaliðinu enn betur. Síðan hefur rætt við nokkra af efnilegri leikmönnum félagsins og nú er talað við nokkra þeirra um hetjur þeirra úr fótboltanum.
Í dag munum við heyra í fjórum leikmönnum sem spiluðu stórt hlutverk þegar lið Liverpool, skipað leikmönnum undir átján ára aldri, unnu Unglingabikarinn fyrir tveimur tímabilum. Hér er rætt við miðjumaninn Ryan Flynn, sóknarmanninn Craig Lindfield, varnarmanninn Godwin Antwi og vængmanninn Ray Putterill.
Ryan Flynn

Hver var hetjan þín sem barn? Ég var mjög hrifinn af Gianfranco Zola. Ég hélt ekki með ensku liði - ég studdi Hibernian - en ég elskaði að horfa á ensku Úrvalsdeildina. Hann var lávaxinn, svipað og ég, og hann var mjög leikinn með boltann. Hann skoraði líka frábær mörk.
Er eitthvað atvik sem að sker sig úr? Ég fékk tækifæri til að sjá hann spila í leik gegn Newcastle og hann var frábær þennan dag. Hann var smávaxinn en gat tekið á stærri og sterkari leikmönnum. Það virtist sem að hann hefði haft allan tíma í heiminum með boltann.
Varstu með nafnið hans aftan á treyjunni þinni? Ég átti fyrst og fremst Hibs treyjur, svo það voru nöfn leikmanna þaðan aftan á.
Craig Lindfield

Hver var hetjan þín sem barn? Robbie Fowler var sú stærsta. Ég fékk að spila við hlið hans gegn Crewe í æfingaleik fyrir tveimur árum, og hann lagði meira að segja upp mark fyrir mig.
Þú hlýtur þá að hafa lifað á því í einhverjar vikur eftir það? Ég lifi enn á því núna! Nei, ég faðmaði hann eftir markið og faðir minn sagði að ég hafði faðmað hann aðeins of lengi!
Er eitthvað atvik sem að sker sig úr þegar þú horfðir á Robbie? Þrennan sem hann skoraði gegn Arsenal sker sig mest úr. Þetta er alltaf sýnt á Sky og ég hef séð mörg myndbönd af þessu.
Hvaða nafn hafðiru aftan á treyjunni þinni? Ég hafði Alan Shearer aftan á treyjunni minni. Hann var fæddur markaskorari sem allir litu upp til.
Þóttistu vera hann þegar þú lékst þér í fótbolta? Ég og bróðir minn vorum í garðinum og þegar við skoruðum þá hrópaði maður alltaf; 'Shearaaaaaaaaaaar!' Ég gaf mig allan í það!
Godwin Antwi

Hver var hetjan þín sem barn? Ég yrði að segja Marcel Desailly vegna þess að hann var ótrúlegur í öllum leikjum sem hann spilaði. Ég man að ég hugsaði að hann væri hreinræktaður snillingur í hvert skipti sem ég sá Chelsea spila - og líka á Heimsmeistaramótinu árið 1998.
Fylgdistu með því hvernig hann spilaði og reyndir að læra af honum? Já, maður getur lært mikið af því. Stundum þegar ég fer á Anfield þá horfi ég ekki á leikinn, ég fylgist með miðvörðunum eins og til dæmis Jamie Carragher. Það eru leikmennirnir sem þú vilt slá út svo ég reyni að læra af þeim.
Hafðiru einhver nöfn aftan á treyjunum þínum þegar þú varst yngri? Nei, í Afríku þá er ekki auðvelt að gera það. Það er svo dýrt. Ég átti þó treyjur. Ég átti græna útibúningin hjá Liverpool með röndunum þremur sem komu niður öxlina, sem þeir klæddust í kringum 1990. Ég átti einnig Real Madrid treyjur vegna þess að pabbi minn var á Spáni.
Ray Putterill

Hver var hetjan þín? Ég er Liverpool aðdáandi svo það er Steven Gerrard. Hann er bara gæðin út í gegn, er það ekki? Hann hefur allt, hann er alhliða leikmaður.
Var hann ástæðan fyrir því að þú varðst fótboltamaður? Já, hann og fólk eins og hann. Ég elskaði hann alltaf þegar ég var barn. Ég var með nafnið hans aftan á treyjunum mínum. Ég þóttist vera hann þar til ég varð ellefu eða tólf ára gamall, en eftir það þá vildi ég vera ég sjálfur. Ég var upprunalega miðjumaður þar til í Unglingabikarnum árið 2007 - við höfðum ekki vinstri kantmann svo ég sagðist geta spilað þar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

