Hetjurnar okkar: Hluti I
Í dag munum við heyra í þremur leikmönnum í varaliðinu. Varnarmaðurinn Ronald Huth, markvörðurinn Dean Bouzanis og sóknarmaðurinn Gerardo Bruna.
Hver er hetjan þín? Ég lít upp til leikmanna hér eins og Steven Gerrard og Javier Mascherano en þegar ég var lítill þá var það Zinedine Zidane. Atvikið sem stendur upp úr hjá mér er markið hans gegn Bayer Leverkusen í úrslitum Meistaradeildarinnar - frábært.
Vildirðu freista þess að spila í sömu stöðu og hann? Nei, ég hef alltaf spilað sem miðvörður og notið þess. Ég dái leikskilninginn sem hann sýndi í hverjum leik og snillina sem að hann spilaði með.
Hafðiru einhvern tíman nöfn einhverja aftan á treyjunum þínum? Þegar ég var yngri þá átti ég alltaf treyjur með nöfnum á. Ég átti Real Madrid treyjur með Ronaldo og David Beckham á, og aðrar treyjur með Rivaldo og Ronaldinho á - ég er að safna þeim.
Dean Bouzanis

Hver er hetjan þín? Tim Cahill og Harry Kewell. Þeir eru vitaskuld mjög frægir heima - ef þú spyrð einhvern hver Harry Kewell er og þau munu vita það. Tim er hálfgerð vél og er svo góður með fæturna sína. Harry bjargaði okkur á síðasta Heimsmeistaramóti.
Hvað með markverði? Gianluigi Buffon. Hann er svo rólegur, einnig er hann svo góður í að koma boltanum í leik. Hann er með svipaðan stíl og Pepe Reina þegar hann sparkar fram, ég sparka svona líka - tökum hann á ská.
Hafðiru einhvern tíman nöfn einhverja aftan á treyjunum þínum? Ég átti Liverpool treyju með Gerrard á, svo aðrar treyjur með Cahill, Kewell og Ronaldinho. Ég spilaði sem miðjumaður svo þess vegna átti ég ekki treyjur með markvörðum á. Ég hef bara verið í markinu í fjögur ár.
Gerardo Bruna

Hver er hetjan þín? Maradona. Ég er fæddur 1991 svo ég missti af honum upp á sitt besta, en ég hef séð myndbönd af honum - þar á meðal í leiknum á móti Englandi. Hann var fullkominn alhliða leikmaður og svo fljótur á fótunum. Önnur hetja er Djalminha, Brasilíumaðurinn sem spilaði fyrir Deportivo La Coruna.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?


