| Sf. Gutt

Enn tapar varaliðið

Ekkert gengur hjá Englandsmeistaraliði varaliðs Liverpool. Í kvöld tapaði það og það sem gerði illt verra að tapið var gegn Everton. Liverpool fékk þó eins góða byrjun og hægt var og náði tveggja marka forystu í þessum fyrsta heimaleik á leiktíðinni. Liðið henti svo frá sér sigri. Þetta var þriðja tap liðsins í röð.

Leikurinn byrjaði af miklum krafti og bæði lið fengu færi. Það var líka hart barist og þrír leikmenn voru komnir í bók dómarans eftir tuttugu mínútur. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en Liverpool komst yfir á 56. mínútu. Jordy Brouwer skoraði þá af harðfylgi af stuttu færi eftir að markmaður Everton hafði ekki náð að halda skoti frá Jay Spearing. Liverpool komst svo tveimur mörkum yfir þegar tæpar 20 mínútur voru eftir. Gerardo Bruna skoraði þá beint úr aukaspyrnu. Allt leit nú út fyrir öruggan sigur Liverpool en Everton náði að svara strax í næstu sókn með skallamarki James Vaughan. Óöryggi færðist í leikmenn Liverpool og Bláliðar gengu á lagið. Lee Molyneux jafnaði metin á 80. mínútu með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu. Bæði lið sóttu til sigurs undir lokin en það var Everton sem hafði sigur þegar James Vaughan skoraði annað mark sitt í leiknum. Hræðileg úrslit og varaliðið verður að fara að taka sig á!

Liverpool: Dean Bouzanis, Stephen Darby, Emiliano Insua, Mikel San Jose, Ronald Huth, Damien Plessis, Francisco Duran, Jay Spearing, Jordy Brouwer, Daniel Pacheco og Gerardo Bruna (80. mín.). Ónotaðir varamenn: Peter Gulacsi, Steven Irwin, Martin Kelly og Daniel Ayala.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Jay Spearing. Miðjumaðurinn lék af miklum krafti og eldmóði í þessum grannaslag.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan