| Ólafur Haukur Tómasson

Torres hælir Kuyt og Keane

Fernando Torres var hetja Liverpool þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigrinum á Everton en hann segir að liðsfélagar hans Robbie Keane og Dirk Kuyt eigi mikið hrós skilið enda áttu þeir báðir stóran þátt í mörkum hans.

"Það er mjög einfalt, án Robbie og Dirk þá hefðu mörkin sem ég skoraði ekki verið sköpuð. Þeir áttu mikinn þátt í báðum mörkunum og það er vegna þess að þeir gefa sig alla fyrir liðið, og það er ástæðan fyrir því að ég gat skorað.

Í fyrra markinu þá var sendingin sem Robbie senti fyrir fullkomin og svo var hlaupið hjá Dirk, sem að færði varnarmennina í burtu og skildi mig eftir í opnu færi.

Það er alltaf gaman að skora en án samherja minna hefði það ekki verið mögulegt. Það er ekki alltaf auðvelt að mynda sterkt nýtt samstarf sem framherjar en við erum að leggja hart að okkur á æfingum og það var gott að sjá vinnuna skila sér á laugardaginn.

Robbie var mjöög mikilvægur í sigrinum okkar og ég er viss um að fljótlega muni það vera hann sem að skorar mörkin vegna þess að hann er frábær leikmaður. Um leið og hann skorar fyrsta markið sitt þá munu enn fleiri fylgja í kjölfarið vegna þess að stundum þarf að létta af sér pressunni með aðeins einu marki.

Ég hafði ekki skorað í sex leikjum sem er alltof langt fyrir framherja, en þegar mér tókst að skora fyrra markið á laugardaginn þá fylgdi hitt næstum strax á eftir og það er oft þannig sem það gerist." sagði Fernando Torres.

Búast má við að þeir félagar Fernando, Robbie og Dirk verði í eldlínunni á morgun þegar PSV heimsækir Anfield og vonandi halda þeir sama dampi frá því á laugardaginn.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan