| Grétar Magnússon

Skrtel einn af strákunum

Martin Skrtel hefur staðið sig vel í hjarta varnarinnar ásamt Jamie Carragher það sem af er tímabilinu.  Þessi sterki Slóvaki segist vera orðinn einn af strákunum í liðinu en tungumálaörðugleikar gerðu honum erfitt fyrir í samskiptum við liðsfélaga sína.

Skrtel viðurkennir að hann hafi átt erfitt uppdráttar með að venjast lífinu í Liverpool.  Hann segir jafnframt að undirbúningstímabilið hafi gert sér gott sem nýtist honum nú þegar hann spilar.

,,Ég var nokkuð fljótur að ná hlutunum þegar ég kom hingað í janúar, en maður hefur samt ekki tækifæri á því að æfa duglega þegar svo langt er liðið inná tímabilið," sagði Skrtel í viðtalið við LFC tímaritið.

,,Við spiluðum mikið í miðri viku og líka um helgar þannig að maður gat gert mikið á æfingavellinum fyrir utan að jafna sig eftir leiki, halda sér í formi og einbeita sér að næsta mótherja.  En í sumar finnst mér ég hafa náð að aðlagast liðinu betur."

,,Að hafa náð undirbúningstímabili með liðsfélögum mínum hefur hjálpað mér mjög mikið.  Ef ég hef byrjað tímabilið vel þá er þetta líklega ein aðalástæðan fyrir því.  Nú get ég sagt að úti á vellinum sé ég einn af strákunum."

Skrtel viðurkennir að hann eigi ennþá við smá tungumálaörðugleika að stríða en engu að síður líður honum eins og heima hjá sér á Anfield.

,,Ég æfi mig í tungumálinu stöðugt.  Ég skil það sem margir eru að segja, en ég er einn af þeim þögulu í búningsklefanum vegna þess að ég er ekki með orðaforðann sem ég myndi vilja búa yfir.  Þetta er ekki vandamál úti á vellinum.  Kannski væri þetta aðeins betra ef ég myndi skilja það sem Jamie Carragher er að segja - en ég veit svosem hvenær hann er að skamma mig."

,,Mér líður samt eins og að ég sé hluti af hópnum.  Úti á vellinum stöndum við saman og berjumst fyrir sama málstað.  Ég er ánægður hjá Liverpool, mér finnst ég eiga heima hér.  Mér finnst ég hafa bætt mig mikið síðan ég kom hingað og ég vil halda áfram að vaxa eftir því sem líður á tímabilið."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan