| HI

Liverpoolklúbburinn með níu samstarfsaðila

Samstarfsaðilar Liverpoolklúbbsins eru nú níu talsins - Players, Ölgerðin, Jói útherji, Glitnir, Bílaáttan, Betson, Úrval-Útsýn, GH Guðmundssynir, GT verktakar. Samningar við sjö þeirra voru undirritaðir á laugardaginn. Klúbburinn gerði tveggja ára samning við Úrval-Útsýn í fyrra og fulltrúi GT-verktaka átti ekki heimangengt við undirritunina.

Liverpoolklúbburinn lýsir yfir mikilli ánægju með samningana, enda eru þeir ein forsenda þess að halda úti jafn öflugu starfi og raun ber vitni.

Hér fyrir neðan má sjá þegar Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpoolklúbbsins skrifuðu undir samningana.

Þórður Kristleifsson, fulltrúi Glitnis, handsalar samninginn. Þetta er annað árið í röð sem bankinn er samstarfsaðili Liveproolklúbbsins.

Players hefur verið heimavöllur Liverpoolklúbbsins til margra ára og á því verður engin breyting. Jóhannes Backman undirritaði samninginn fyrir þeirra hönd.

GH Guðmundssynir hafa verið ötullir samstarfsaðilar klúbbsins í nokkur ár. Hér skrifar Haukur Guðmundsson undir samning um það.

Bílaáttan, einn af áralöngum samstarfsaðilum klúbbsins, endurnýjaði það samstarf. Jóhannes Jóhannsson staðfestir það hér.

Íþróttavöruverslunin Jói útherji hefur stutt myndarlega við starf Liverpoolklúbbsins í gegnum árin. Valdimar Magnússon skrifar hér undir framhald á því góða samstarfi.

Betsson bættist nú í hóp samstarfsaðila í fyrsta sinn. Lárus Páll Ólafsson fulltrúi þeirra handsalar samning þess efnis með bros á vör.

Þá samdi klúbburinn einnig í fyrsta sinn við Ölgerðina um samstarf. Gunnar B. Sigurgeirsson skrifaði undir þann samning fyrir hönd Ölgerðarinnar.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan