Liverpoolklúbburinn gerir samstarfssamninga
Samstarfsaðilar þessa tímabils eru Ölgerðin, Jói Útherji, Players, GH Guðmundssynir, Bílaáttan,Glitnir, GT verktakar, Úrval Útsýn og Betson.
Sigursteinn Brynjólfsson, formaður Liverpoolklúbbsins og fulltrúar stuðningsaðila undirrituðu samninga á Players laugardaginn 13. september og fylgdust með sigri Liverpool á heimavelli að því loknu. Samningur Liverpoolklúbbsins við samstarfsaðila gerir klúbbnum kleift að viðhalda öflugri starfsemi og þakkar klúbburinn fyrirtækjunum gott framlag.
Liverpoolklúbburinn er fjölmennasti stuðningsmannaklúbbur liðs ensku deildarinnar á Íslandi og greiddu um 2100 meðlimir félagsgjald á síðasta tímabili. Mikið og öflugt starf fer fram á vegum.klúbbsins. Má þar nefna heimasíðuna www.liverpool.is þar sem finna má eitt vinsælasta fótboltaspjallborð landsins og tímaritið Rauða Herinn sem mun koma út 6 sinnum á tímabilinu. Liverpoolklúbburinn mun standa fyrir fánadögum í Reykjavík, Keflavík og á Akureyri á yfirstandandi tímabili. Að venju verður farið á Anfield og má finna allar upplýsingar um ferðir og tilhögun þeirra á www.liverpool.is. Í ár er í fyrsta sinn boðið upp á fjölskylduáskrift og er félagsgjaldið 2500 krónur fyrir þá eru með fulla aðild og svo 1000 krónur fyrir hvern fjölskyldumeðlim sem er skráður undir félagsmanni sem greiðir fullt gjald. Frekari upplýsingar um starfsemi Liverpoolklúbbsins á Íslandi má finna á www.liverpool.is.
Mynd: Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpoolklúbbsins á Íslandi og fulltrúar samstarfsaðila.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

