Örtröð hjá Carra
Mikil örtröð myndaðist þegar Jamie Carragher áritaði nýútkomna bók sína, í bókabúð WH Smith í miðborg Liverpool, í fyrradag. Hundruðir aðdáenda kappans mættu til að fá bókina áritaða af honum sjálfum. Þeir fyrstu mættu klukkan átta um morguninn en Jamie kom klukkan hálf þrjú eftir hádegið! Hann var í búðinni í tvo klukkutíma. Jamie hélt svo útgáfuteiti á veitingastaðnum sínum, Sports Cafe England, um kvöldið. Þangað voru útvaldir boðnir svo sem Kenny Dalglish, kona hans og Steven Gerrard.
Búist er við að bókin, sem heitir einfaldlega Carra, muni seljast mjög vel. Hún rekur feril hans frá upphafi til dagsins í dag. Upp á síðkastið hafa valdir kaflar úr bókinni verið birtir í dagblöðum á Englandi og það má ljóst vera að Carra dregur hvergi af sér á síðum bókarinnar frekar en inni á vellinum. Meðal þess sem vitað er að fjallað er um í bókinni, og þykir bitastætt, er opinská gagnrýni á eigendur Liverpool F.C.
Þeir Robbie Fowler og Steven Gerrard hafa báðir gefið út æfisögur sínar á síðustu árum. Þykja þær hafa heppnast vel og salan á þeim hefur verið mjög góð. Næsta víst er að stuðningsmenn Liverpool munu margir kaupa sér þessa nýju bók enda verður maður að eiga bók um Carra ef maður á fyrir bækur um Robbie og Steven!
Hér eru upplýsingar um bókina.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

