Landsleikjafréttir
Baráttan um farseðla til Suður Afríku hélt áfram í kvöld þegar seinni hluta þessarar fyrstu landsleikjahrinu leiktíðarinnar lauk. All nokkrir leikmenn Liverpool komu við sögu.
Evrópumeistara Spánverja unnu öruggan 4:0 sigur á Armenum í Albacete. David Villa skoraði tvívegis og þeir Joan Capdevila og Marcos Senna bættu við einu marki hvor. Xabi Alonso, sem kom inn sem varamaður, lagði upp seinna markið sem David skoraði. Þetta var 50. landsleikurinn sem Xabi leikur.
Sami Hyppia var í liði Finna sem gerðu 3:3 jafntefli við Þjóðverja í frábærum leik í Finnlandi. Finnar komust þrívegis yfir með mörkum Jonathan Johansson, Mika Vayrynen og Daniel Sjölund sem eitt sinn var á mála hjá Liverpool. Miroslav Klose jafnaði í öll skiptin fyrir þýska.
Daniel Agger var í liði Dana sem unnu frækilegan útisigur í Portúgal. Nani kom heimamönnum yfir en Nicklas Bendtner jafnaði þegar átta mínútur voru eftir. En það var mikið eftir enn. Deco kom Portúgal aftur yfir þegar hann skoraði úr víti en Danir tryggðu sér sigur með tveimur mörkum á lokamínútunni. Christian Poulsen og Daniel Jensen skoruðu mörkin.
Þriðji miðvörðurinn frá Liverpool, Martin Skrtel, lék með Slóvökum sem töpuðu 2:1 á útivelli fyrir grönnum sínum frá Slóveníu.
Andriy Voronin kom inn sem varamaður undir lokin þegar Úkraínumenn unnu 3:1 sigur í Kazakstan.
Dirk Kuty kom líka inn sem varamaður þegar Hollendingar unnu 2:1 útisigur í Makedóníu. Ryan Babel var líka varamaður en kom ekki við sögu.
Írar náðu góðu jafntefli í Svartfjallalandi. Robbie Keane og Steve Finnan voru báðir í byrjunarliði Íra.
Yossi Benayoun var í liði Ísraelsmanna sem unnu góðan 2:1 útisigur í Moldavíu.
Andrea Dossena lék allan leikinn með heimsmeisturum Ítala þegar þeir unnu 2:0 sigur á Georgíumönnum.
Brasilíumenn gerðu 0:0 jafntefli við Bólivíu. Lucas Leiva var í byrjunarliðinu.
Nicolas Anelka, fyrrum lánsmaður hjá Liverpool, skoraði fyrir Frakka þegar þeir unnu Serba 2:0 í Frakklandi. Thierry Henry skoraði hitt markið. Alou Diarra, sem eitt sinn var á mála hjá Liverpool, kom inn á sem varamaður.
Hinir ungu lærisveinar John Toshack máttu þola naumt 2:1 tap í Moskvu fyrir Rússum. Veilsverjar þóttu standa sig mjög vel í leiknum.
Hér eru myndir úr landsleikjunum af vefsíðu BBC.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

