| Sf. Gutt

Landsleikjafréttir

Í gær hófu Evrópuþjóðirnar baráttu sína um farseðla til Suður Afríku en þar fer úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar fram árið 2010. Fulltúar Liverpool komu víða við sögu.

Martin Skrtel skoraði fyrsta mark Slóvaka þegar þeir lögðu Norður Íra að velli 2:1. Martin skoraði með skalla eftir fyrirgjöf mínútu eftir leikhlé. Þetta mun hafa verið fimmta landsliðmark hans. Marek Hamsik kom Slóvökum í 2:0 áður en Norður Írar minnkuðu muninn með sjálfsmarki Jan Durica.

Ísraelsmenn fegnu Svisslendinga í heimsókn. Gestirnir komust í 0:2 með mörkum Yakin og Nkufo. Allt leit út fyrir sigur þeirra þar til Yossi Benayoun minnkaði muninn rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok. Shar náði svo að jafna á lokamínútunni við mikinn fögnuð heimamanna.

Robbie Keane lék allan leikinn þegar Írar unnu góðan 2:1 sigur á Georgíu. Leikurinn fór fram í Þýskalandi vegna stríðsástandsins í Georgíu. Kevin Doyle kom Írum yfir snemma leiks og átti Robbie þátt í markinu. Robbie átti svo skot í tréverkið áður en Glenn Whelan kom Írum í 2:0. Levan Kenia minnkaði muninn undir lokin. Steve Finnan var í byrjunarliðinu.

Danir sóttu stig til Ungverjalands og stóð Daniel Agger vaktina í vörn Dana frá upphafi til enda.

Andriy Voronin var í byrjunarliði Úkraínu sem lagði Hvít Rússa 1:0. Nafni hans Shevchenko skoraði sigurmarkið úr víti á síðustu mínútu leiksins.

Evrópumeistarar Spánverja herjuðu fram sigur á Bosníumönnum á Spáni. David Villa skoraði sigurmarkið með skoti næstum fyrir aftan endamörk! Varla hefur sést skorað mark úr jafn þröngu færi. Hann hafði áður misnotað víti. Xabi Alonso kom inn sem varamaður. Þetta var fyrsti leikur Spánverja á heimavelli eftir að þeir unnu Evrópukeppnina.

John Toshack gat verið sáttur með lærisveina sína en þeir unnu Asera 1:0 á Árþúsundaleikvanginum í Cardiff. Reyndar lék Wales alls ekki vel en sigurinn var fyrir öllu. Hinn 18 ára gamli Sam Vokes, sem leikur með Úlfunum, skoraði sigurmarkið á 83. mínútu. Lið Veilsverja er mjög ungt og John er sem fyrr að reyna að byggja upp gott lið.

Ólympíumeistarinn Javier Mascherano lék með Argentínumönnum sem gerðu 1:1 jafntefli við Paragvæ. Javier var bókaður í leiknum.

John Arne Riise, sem nú leikur með Roma, lék gegn Íslendingum í Osló þegar frændþjóðirnar skildu jafnar 2:2. Hann var sprækur í fyrri hálfleik og átti nokkrar rispur en sást lítið í þeim síðari. Þetta var 73. landsleikur hans en sá fyrsti var gegn Íslendingum árið 2000. Kannski er hann eini leikmaður Liverpool sem hefur leikið sinn fyrsta landsleik gegn Íslendingum?

Enginn leikmaður Liverpool lék með enska landsliðinu gegn Andorra. Enskir herjuðu fram sigur í Barcelona. Joe Cole skoraði bærði mörkin í síðari hálfleik eftir að hafa komið inn sem varamaður. Þeir David James og Emile Heskey, sem áður léku með Liverpool, léku með enska liðinu sem var mjög slakt svo ekki sé meira sagt.

Ryan Babel og Dirk Kuyt komu báðir við sögu þegar Hollendingar töpuðu 2:1 í æfingaleik fyrir Áströlum. Harry Kewell skoraði fyrir Ástrali úr vítaspyrnu.

Hér eru myndir úr landsleikjunum af vefsíðu BBC.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan