Mun endurgjalda Rafa með titlum
Javier Mascherano er þakklátur Rafa Benítez fyrir að leyfa sér að spila með argentínska landsliðinu á Ólympíuleikunum fyrr í mánuðinum. Hann vill endurgjalda Rafa með því að hjálpa liðinu að vinna titla á tímabilinu.
Mascherano er hér í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins eftir að hann kom aftur til Liverpool með sitt annað Ólympíugull í farteskinu. Hann segist ævinlega þakklátur Rafa Benítez fyrir að hafa gefið sér tækifæri á því að vinna aftur til gullverðlauna á Ólympíuleikum. Þrátt fyrir að hafa ferðast um hálfan hnöttinn frá Peking segist hann vera 100% klár í slaginn gegn Aston Villa nú á sunnudaginn.
,,Mér líður mjög vel. Ég á auðvitað ennþá eftir að aðlagast æfingunum aftur því maður æfir allt öðruvísi með landsliðinu," sagði Argentínumaðurinn. ,,Ég er klár fyrir leikinn gegn Aston Villa en þetta veltur allt á því hvað Rafa finnst."
,,Ég vann gullið á Ólympíuleikunum ekki bara fyrir mig heldur alla stuðningsmenn Liverpool, liðsfélaga mína sem voru hér að leggja hart að sér, og líka fyrir Rafa. Rafa og félagið gáfu mér tækifæri á að vinna þessi gullverðlaun - þeir hefðu getað sagt að ég mætti ekki fara. Ég verð því að segja takk fyrir mig við alla hér hjá félaginu og til stuðningsmannana fyrir skilninginn. Ég mun nú gera mitt besta til að vinna einhverja titla fyrir Liverpool."
,,Ég veit ekki hvernig sigur í deildinni eða Meistaradeildinni er í samanburði við Ólympíugullið vegna þess að ég hef ekki unnið þessa titla, en ég veit að Ólympíuleikarnir eru kannski skref niður á við frá Meistaradeildinni - jafnvel þó að þetta sé jafn mikilvægt fyrir mér vegna sögunnar og lands míns."
Mascherano er fyrsti argentínski knattspyrnumaðurinn sem vinnur til tveggja gullverðlauna á Ólympíuleikum - en það er ekki eitthvað sem hann montar sig af á Melwood.
Hann útskýrir: ,,Sumir læknanna og sjúkraþjálfarana spurðu mig hvort þeir mættu sjá verðlaunin en mér líkar ekki að gera það. Ólympíuleikarnir eru liðnir. En auðvitað er ég mjög ánægður. Þetta var frábær tilfinning fyrir mig og land mitt."
,,Það er magnað að hugsa um það að ég sé fyrsti argentínumaðurinn sem vinnur tvenn gullverðlaun. Þegar árin líða, mun ég segja dóttur minni og börnum frá þessu. Medalíurnar eru í Liverpool en þegar ég mun komast aftur til Argentínu þá tek ég þær með mér."
Í keppninni mætti Mascherano bæði Ryan Babel og Lucas, Babel í 8-liða úrslitum og Lucas í undanúrslitum.
Hann bætti við: ,,Ég gat notið stundarinnar fyrir land mitt, en það er ekki auðvelt þegar maður vinnur nokkra af liðsfélögum sínum sem maður æfir með daglega nánast allt árið. Líklega vildu Lucas og Babel vinna gullið líka, þannig að þetta var erfið staða. En allt í lagi, ég var ánægður með að sigra Brasilíu en Lucas var mjög niðurdreginn, þannig að ég reyndi auðvitað að sýna virðingu."
,,En svona er fótboltinn. Það eru engin leiðindi núna og við munum vinna saman hjá Liverpool. Við erum búnir að gleyma þessu."
Þrátt fyrir að hafa skráð nafn sitt á spjöld sögunnar þá er ekki möguleiki á því að Mascherano gleymi sér í sigurvímu nú þegar hið daglega líf hjá Liverpool hefst að nýju. Þegar hann er spurður hvort hann myndi vilja taka þátt í sínum þriðju Ólympíuleikum þegar leikarnir verða haldnir í London eftir fjögur ár, sagði hann: ,,Það væri frábært tækifæri fyrir mig vegna þess að ég á heima á Englandi. Við sjáum til en það væri frábært að spila á Ólympíuleikunum í London."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

