| HI
Spænska félagið Espanyol hefur gefið kantmanninum Albert Riera þriggja sólarhringa frest til að klára félagaskipti sín til Liverpool. Riera hefur verið orðaður við ýmis lið í sumar, helst Liverpool og Everton, en hann lék á síðasta tímabili með Manchester City sem lánsmaður.
Eins og staðan er núna þykir líklegast að hann komi til Liverpool en ekki hafa þó enn náðst samningar við leikmanninn. Einhverjir enskir fjölmiðlar hafa þó haldið því fram að búið sé að semja við Espanyol um kaupverð og eru tölur frá 10-16 milljónum punda nefndar.
Paco Herrera, sem er yfirmaður íþróttamála hjá Espanyol en starfaði áður hjá Liverpool sagði um málið. "Þetta er viðkvæmur tími og verið verðum að tryggja að lausn fáist á einn eða annan hátt. Allt gengur vel og það er hægt að ná samningum. Við getum leyst þau ágreiningsmál sem eru til staðar og næstu 2-3 daga verður að koma lausn því við höfum ekki meiri tíma."
TIL BAKA
Riera fær þriggja daga frest
Spænska félagið Espanyol hefur gefið kantmanninum Albert Riera þriggja sólarhringa frest til að klára félagaskipti sín til Liverpool. Riera hefur verið orðaður við ýmis lið í sumar, helst Liverpool og Everton, en hann lék á síðasta tímabili með Manchester City sem lánsmaður.Eins og staðan er núna þykir líklegast að hann komi til Liverpool en ekki hafa þó enn náðst samningar við leikmanninn. Einhverjir enskir fjölmiðlar hafa þó haldið því fram að búið sé að semja við Espanyol um kaupverð og eru tölur frá 10-16 milljónum punda nefndar.
Paco Herrera, sem er yfirmaður íþróttamála hjá Espanyol en starfaði áður hjá Liverpool sagði um málið. "Þetta er viðkvæmur tími og verið verðum að tryggja að lausn fáist á einn eða annan hátt. Allt gengur vel og það er hægt að ná samningum. Við getum leyst þau ágreiningsmál sem eru til staðar og næstu 2-3 daga verður að koma lausn því við höfum ekki meiri tíma."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

