| Sf. Gutt

Argentínumenn vörðu Ólympíutitilinn!

Argentínumenn urðu Ólympíumeistar í knattspyrnu í nótt eftir 1:0 sigur á Nígeríu.

Argentína varði þar með Ólympíutitilinn frá því í Aþenu fyrir fjórum árum en þá unnu þeir 1:0 sigur á Paragvæ. Javier Mascherano vann sitt annað Ólympíugull!

Javier Mascherano var í byrjunarliði Argentínumanna eins og í öllum leikjum argentínska liðsins í Kína. Það var gríðarlega heitt í Peking þegar úrslitaleikurinn fór fram í Fuglshreiðrinu. Sólin skein glatt og hitinn mun hafa farið í 42 stig. Dómarinn stöðvaði líka leikinn í tvígang til að hægt væri að brynna leikmönnum!

Fyrri hálfleikur var tíðindalítill enda fóru leikmenn hægt yfir í hitanum. Það var varla að hægt væri að tala um að marktækifæri skapaðist. Heldur færðist fjör í leikinn eftir leikhlé og það voru meistararnir sem komust yfir á 58. mínútu. Lionel Messi sendi þá góða stungusendingu inn fyrir vörn Nígeríu. Angel Di Maria, leikmaður Benfica, fékk sendinguna og vippaði boltanum glæsilega yfir markmann Nígeríu sem kom út á móti honum. Nígeríumenn hertu sig eftir því sem leið á leikinn og fengu færi til að jafna.. Á 65. mínútu náði Victor Anichebe, leikmaður Everton að skjóta að marki eftir fyrirgjöf en skoti hans var bjargað. Litlu síðar skall hurð nærri hælum þegar Javier Mascherano reyndi að hreinsa. Boltinn fór í einn leikmann Nígeríu og fór af honum rétt framhjá. Besta færi Nígeríu kom sex mínútum fyrir leikslok þegar Sergio Romero, markmaður Argentínu, varði glæsilega frá Victor Anichebe. Meistararnir náðu að halda út og verja titil sinn og um leið hefndu þeir fyrir 3:2 tap fyrir Nígeríu í úrslitaleiknum í Atlanta 1996. Stuðningsmenn Argentínu fögnuðu og fáir meira en Diego Maradona sem var mættur á svæðið.

Argentínumenn vörðu eins og áður segir titil sinn og slíkt er fágætt. Aðeins fjórum sinnum í Ólympíusögunni hefur þjóð tekist að verja Ólympíutitil í knattspyrnu. Stóra Bretland gerði það 1908 og 1912, Úrúgvæ 1924 og 1928 og Ungverjaland 1964 og 1968. Javier Mascherano var eini leikmaður argentínska liðsins sem var líka í gullliðinu fyrir fjórum árum. Hann er um leið fyrsti leikmaður Liverpool í seinni tíð til að vinna Ólympíugull. Frábært afrek!

Hér eru myndir úr leiknum af FIFA.com.

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan